19. júní - 19.06.1986, Blaðsíða 69
Bændur og dýralæknar slógu sanian í „bás“ og komu konur daglcga austan úr sveitum til að kvnna bústörfin. Salómc Þorkclsdóttir og
Svcrrir Hcrniannsson á góðri stund.
Aö morgni 24. október 1985 opnuðu konur sýningu á störfum sínum og kjörum
í húsnæði Seðlabanka íslands við Arnarhól. Yfir 70 stéttar- ogfagfélögsýndu þar
í verki, máli og myndum hversu mikil og fjölbreytt atvinnuþátttaka kvenna er
orðin og um leiö hversu ótrúlega lítið þær bera úr býtum. Fjöldi félaga og baráttu-
samtaka kvenna tók einnig þátt í sýningunni.
Margir tugir kvenna unnu að undirbúningi Kvennasmiðjunnar og á rúmri viku
var óinnréttuðu húsnæðinu breytt í blómlegt og lifandi torg undir öruggri forystu
Ragnheiðar Harvey framkvæmdastjóra. Og viti menn-það mynduðust biðraðir
langt út á Arnarhólinn!
Um 18 þúsund manns höfðu heimsótt Kvennasmiðjunna þegar henni var lokað
að kvöldi 31. október, þeirra á meðal fjöldi skólanema sem komu þar í starfs-
kynningu. Hver dagur var helgaður ákveðnum stéttum með fræðslu og
skemmtan og listamenn lögðu fram drjúgan skerf til skemmtidagskrársem haldin
var á sviöinu hvert kvöld og tvisvar á dag um helgina.
Það var ’85-nefndin sem stóð fyrir Kvennasmiðjunni en undirbúningshópinn
skipuðu: Anni G. Haugen, Álfheiður Ingadóttir, Arndís Steinþórsdóttir, Ingi-
björg Sólrún Gísladóttir, Ingibjörg R. Guðmundsdóttir, Jóhanna Sigurðardóttir
og Þórunn Gestsdóttir.
Sjónvarpið lét gera 30 mínútna heimildarmynd um Kvennasmiðjuna og önn-
uöust Sonja B. Jónsdóttir, MaríannaFriðjónsdóttirogBaldurHrafnkell Jónsson
gerð hennar. Þá gáfu blaða- og bókagerðarmenn út dagblað á hverjum sýningar-
degi. Þessar ágætu heimildarmyndir sýna vel þá samstöðu og samvinnu sem
Kvennasmiðjan útheimti og um leið að íslenskar konur skortir ekki þor þegar
þær vilja sýna hvað þær geta!
Myndir og texti:
Álfheiður Ingadóttir
69