19. júní - 19.06.1986, Blaðsíða 12
sér scm mest sjálf, auðvitað innan
ákveðinna marka. Annars hef ég voða
lítinn áhuga á jafnréttisbaráttu kynj-
anna, mér finnst að þetta þurfi sem
fyrst að verða nokkuð sjálfsagt mál,
svo hægt sé að snúa sér að einhverju
öðru.“
- Hverju viltu spá um framtíðina?
„Þessi mál eru auðvitað í mjög mis-
munandi standi víða um heim, en ef
við höldum okkur við ísland, þá held
ég þessi þróun snúist aldrei við. Konur
fara aldrei inn á heimilin aftur til að
verða húsfreyjur. Flestar konur kvarta
um það í dag að vinna tvöfalda vinnu,
utan heimilis og svo öll heimilisstörfin,
en ég held og vona að aðalástæðan
fyrir því sé lengri vinnutími karla utan
heimilis. Sveigjanlegur vinnutími
myndi ráða bót á mörgu í þessu sam-
bandi, og auka þyrfti möguleika á
hlutastörfum. Hitt er svo aftur annað
mál að margir hafa ekki efni á að laun
þeirra lækki. Konurog karlarhafa líka
mismunandi viðhorf til heimilisstarfa,
oft er sagt að karlar kunni ekki að
skúra og þessháttar, en í flestum til-
fellum eru það konur sem vilja ekki
gefa þessi verk frá sér. Konur hafa haft
forskot yfir karla í matargerð og þess-
háttar og það særir metnað þeirra og
stolt að missa t.d. matargerðina úr
höndum sér.
En framtíðin er í höndum þeirrar
kynslóðar sem nú er að alast upp, það
hafa talsverðar breytingar átt sér stað
á undanförnum árum, það er t. d. ekki
lengur kynskipt í skólum, strákarlæra
nú að prjóna og elda mat og finnst það
alveg eðlilegt. Mörg af þessum börn-
um hafa einnig alist upp við það að
karlinn á heimilinu eldi jafnt og konan
og fyrirmynd þeirra verður því önnur
en hún hefur verið.“
heimili landsins!
Það er /án
að skipta við
SPAR/SJÓÐ/NN
5PARI5J0ÐUR
HAFNARFJARÐAR
STRANDGÖTU 8-10
5PARI5JÚÐUR
HAFNARFJARÐAR
NORDURBÆR REYKJAVIKURVEGI66
12