19. júní


19. júní - 19.06.1986, Síða 51

19. júní - 19.06.1986, Síða 51
Vítahringur - Af hverju treysla konur sér ekki til að rjúfa þennan vítahring? Það er ekki til neitt einhlítt svar við þessu, fólk reynir að halda í hjóna- bandið í lengstu lög. Svo eru þetta niðurbrotnar manneskjur oft á tíðum og eiga stundum ekki í neitt hús að venda. Skilnaðarmál geta dregist á langinn, leiguhúsnæði er dýrt og allt of lítið framboð á því. Við höfum þurft að horfa á eftir konum heim aftur beinlínis vegna þess að þær réðu ekki við þær okurgreiðslur sem tíðkast á leigumarkaðinum. - Hvernig eru horfur í atvinnumál- um þessara kvenna? Konur sem búa við barsmíðar eða annað ofbeldi eiga erfitt með að stunda vinnu reglulega. Starfsfélagar og atvinnurekendur vita sjaldnast hvað gengur á eða loka augunum beinlínis fyrir því. Það þarf að verða hugarfarsbreytring hjá stjórnendum fyrirtækja, svipað því sem hefur orðið í sambandi við áfengismál. Þeir þurfa að styðja við bakið á konunum (sumir gera það) og styðja karlana til að fara í meðferð eins og mörg fyrirtæki hafa gert við drykkjumenn. A móti kemur að 35% þessara kvenna eru heimavinnandi. Ástæðan er að hluta til sú að konurnar eru margar með ung börn og komast ekki út til vinnu. - Viltu gefa dcemi um hvernig and- legt ofbeldi lýsir sér? Oftast eru það stöðugar yfirheyrsl- ur, konan verður að gera nákvæma grein fyrir öllum sínum hræringum og dæmi eru um að öfgarnar nái svo langt, að símtöl eru rakin með því að taka þau upp á segulband, þannig að öll símtöl eru rakin til og frá viðkomandi heimili. Það er líka einkennandi fyrir þessar konur hvað þær eru einangraðar, líka efnahagslega. Þær hafa yfirleitt mjög naum fjárráð, jafnvel þótt fjölskyldan sé vel efnuð. Eiga oft á tíðum ekki einu sinni fyrir leigubíl til að komast í athvarfið og aðeins um helmingur getur borgað daggjöldin sem þó eru mjög lág, 250 kr. á dag. Fjárhagur og skipulag - Hvernig styrkja ríki og borg athvarfið? Farið var fram á að ríkið sæi um 70% rekstrarkostnaðar (var 60% áður) en borgin greiddi 30%. Ríkið hefur ekki staðið sig svo illa, á fjár- lögum fyrir 1986 fengum við 2.035 þús. Farið var franr á 978 þús. kr. framlag frá Reykjavíkurborg, en veitt var sama krónutala og ífyrra, 625 þús. kr., sem eru rétt rúmar tvær fegurðar- drottningar. Einnig var farið fram á styrk við nágrannasveitarfélög. Flest þeirra hafa tekið því vel, en þó nokkur hafa neitað, jafnvel þótt við höfum hýst konur frá þeim og þeir viti það. - Fullnœgir núverandi húsnœði athvarfsins þörfinni? Nei, við þyrftum að fá heila blokk. Sveitarfélögin þyrftu að hafa íbúðir til ráðstöfunar, a.m.k. þannig að kon- urnar gætu leigt á vegum sveitarfélag- anna til að byrja með, en enginn vill horfast í augu við að slíkur fjöldi kvenna og barna sé á flótta í íslensku þjóðfélagi. - Hvernig er skiptingin eftir lands- hlutum? Eru flestar kvennanna ekki héðanfrá Reykjavík og nágrenni? Jú, 87% koma frá höfuðborgar- svæðinu. - Hvernig er skipulag samtakanna? Skipulag samtakanna miðar að því að félagsmenn séu virkir þátttakendur i starfseminni. Allar þýðingarmiklar ákvarðanir eru teknar á almennum félagsfundum. Starfið fer frarn í vinnu- hópum - þetta er arfleifð frá 8. ára- tugnum - og núna eru starfandi sjö hópar. Hver hópur á fulltrúa í fram- kvæmdanefnd sem stýrirsamtökunum milli funda. Konur gegn nauðgun - Eru einhverjar nýjungar á döfinni lijá ykkur? Já, það er ýmislegt að gerast, við erum að fikra okkur áfram til að bæta starfsemi athvarfsins og auka hana. Frá upphafi hefur það verið markmið hjá okkur að aðstoða þær konur sem hefur verið nauðgað en hingað til höfum við ekki sinnt þessu sem skyldi. En núna starfar innan sanrtakanna hópur sem kallar sig „Konur gegn nauðgun", þær hafa kynnt sér þessi mál sérstaklega og eru tilbúnar til að aðstoða konur. Það má hringja í athvarfið á hvaða tíma sem er og þá er einhver úr hópnum kölluð út. Þær eru líka í sambandi við lögregluna og fá að vera viðstaddar yfirheyrslur og fylgja konunni í læknisskoðun. Svo höfunr við líka verið með sjálfs- varnarnámskeið fyrir konur og ætlum að halda því áfram. Þær sem hafa tekið þátt í þessum námskeiðum hafa látið vel af þeim og segja að þetta auki ekki bara á færni þeirra til að verjast árás heldur ekki síður á sjálfsöryggið. Og loks eru það sjálfstyrkingarhóp- arnir sem við erum að fara af stað með núna. Þeir eru ætlaðir þeim konum sem dvalið hafa í athvarfinu. Þetta verða litlir hópar, 6-8 konur og leið- beinandi. Við ætlum að fá fagmann- eskjur til að koma þessum hópum af stað. Síðar verða svo e.t. v. sameigin- legir fræðslufundir fyrir hópana. Purfwn að ná til karlanna - Eitthvað að lokum? Nú veit ég ekki hvort það er algengt að karlmenn lesi þetta blað, en við þurfum að ná til þeirra. Við þurfum að ræða alvarlega við þá um þessi mál. Það ofbeldi sem karlar beita á heim- ilum er svo algengt hér á landi að það er ekki hægt að líta á það sem einkamál þessara fjölskyldna, þetta er þjóðfélagslegt vandamál. Karlmenn þurfa að sinna þessum málum, þeir mega ekki horfa upp á vinnufélaga sína og vini misþyrma konu og börnum. Þeir þurfa líka að takast á við þá ábyrgð sem felst í því að vet a félagi og vinur og hjálpa þessum kyn- bræðrum sínum út úr þeim ógöngum sem þeir eru komnir í. Karlmenn hafa unnið gott starf í santbandi við áfengismál. Gætu ekki þeir menn sem beita ofbeldi heima hjá sér stofnað AO á sama grundvelli og AA-samtökin og hjálpað hver öðrum til að forðast að beita ofbeldi! Konur mættu benda körlum á þetta verkefni og hjálpa þeim við það. Viðtal: Ásta Benediktsdóttir 51
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90

x

19. júní

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.