19. júní


19. júní - 19.06.1986, Blaðsíða 23

19. júní - 19.06.1986, Blaðsíða 23
Að mega loksins hafa tilfinningar Þetta orðalag „að fá“ og „að mega loksins" sýna tilfinningar kom aftur og aftur fyrir í viðtölunum, og það kom greinarhöfundi nokkuð á óvart hversu mikla áherslu viðmælendurnir lögðu á þetta atriði. Sveinn Haraldsson, sem er 23 ára gamall samkynhneigður háskólanemi, hafði þessa skoðun á málinu: „Hér áður fyrr voru allar rauð- sokkur grunaðar um að vera lesbískar en nú er dæmið að snúast við, mjúkir karlmenn voru og eru oft grunaðir um að vera hommar! Þó fá þeir að sýna til- finningar í auknum mæli og þeir hafa jafnvel náð svo langt að geta talað um þær sín á milli. Mér finnst þó að heteró- sexúal karlmenn eigi erfiðara nteð það en hommar, enda eru hommar ekki bundnir af því að þurfa að halda uppi harðri karlmennskuímynd.“ Og hann heldur áfram eftir nánari umhugsun: „Það er enginn grundvallarmunur á tilfinningalífi kynjanna, nenta þá að heterósexúal karlar eru mun róman- tískari en heterósexúal konur.“ Staða karlmannsins inn á heimilinu, hver er hún í dag eða hvernig ætti hún að vera var næsta spurning sem lögð var fyrir ungu mennina sex. Svipuð svör komu fram hjá flestum þeirra og þau snerust að mestu um barnaum- önnun og húsverk. „Það er orðin skylda að feöur séu viðstaddir fæðingu barna sinna,“ sagði útivinnandi l'aðir og bætti við: „Það finnst mér ekkert betra en áður þegar þeim var bannað það. Þetta eru öfgar í sín hvora áttina. Mér fannst það ganga of langt þegarég átti að fara að gera öndunaræfingar með konunni á námskeiöi fyrir verð- andi mæður!“ Varðandi heimilisstörf þá má segja að Sveinn Haraldsson mæli fyrir munn þeirra allra í eftir- farandi svari: „Megin breytingin inni á heimilinu er sú að ungir menn sem ætla út í sant- búð í dag verða að gera ráð fyrir því að þurfa að taka fullan þátt í heimilis- störfunum. Því erunt við sem erum núna 20-25 ára gamlir ekki vanir við úr uppeldinu, feður okkar komu lítið sem ekkert nálægt eldhúsinu.“ Karlar eru í biðstöðu Jú, þarna hefur vissulega orðið breyting á, en þegar piltarnir voru spurðir um afstöðu sína gagnvart jafn- réttisumræðu kvennaáratugarins og breyttri konu þá voru svör þeirra fremur ólík. 25 ára eiginmaður og faðir sem kvaðst vera róttækur jafn- réttissinni hafði þetta að segja: „Jafn- réttisumræða kvennaáratugarins hef- ur helst haft þau áhrif að þeir sem hafa alltaf verið karlrembusvín þora ekki lengur að láta skoðanir sínar í ljós og sumir eru jafnvel farnir að skamm- ast sín fyrir þær, þótt margir eigi mjög erfitt með að breyta viðhorfunt sínum og þá sérstaklega þeir eldri. Annars eru þeir karlmenn sem ég umgengst allt frá því að vera á svipaðri línu og ég og allt upp í stokkfreðna þorskhausa. Það er þó afdráttarlaus meirihluti kunningja minna fylgjandi jafnrétti, það er á hreinu.“ Annar svaraði þessu til við sömu spurningu: „Karlar eru í biðstöðu á meðan konur eru að ná áttum. Þær eru að leita að sjálfi og geta ekki gert upp á milli þess að vera heinta eða vinna úti. Margar þeirra vilja vera heinta en geta það ekki vegna þjóðfélgsástæðna. Ég held þó að til lengdar líði þeim illa að vera fjarri börnunum meira og minna allan daginn. Það er verið að búa til vandamál á heimilunum sem hefðu ekki skapast ef konur hefðu farið beint út á vinnumarkaðinn. Rétt- lát verkaskipting innan heimilisins skapast þá af sjálfu sér þegar báðir aðilar vinna úti, því hef ég reynslu af sjálfur." Svo mörg voru þau orð. En Jens Kristjánsson talaði um launakjör kvenna: „Áhrif jafnréttisumræðunnar undanfarin ár felast númer eitt í því að fólk er meira meðvitað en áður um launamismun milli kynja í sömu störfum." Sveini fannst hins vegar mikilvægast „að það eru kornnir brestir í karl- mannsímyndina sem hlutverkaskipt- ing kynjanna hefur byggst á. Karlar eru orðnir óöruggir um stöðu sína og Jens Kristjánsson: „Nú er loksins viðurkennt að karlar inegi hafa tilfinningar, án þess að þeir séu álitnir hrein taugaflök.“ (Ljósm. AFG.) 23
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90

x

19. júní

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.