19. júní - 19.06.1986, Blaðsíða 42
Nýr FORMAÐUR
JAFNRÉTHSRÁÐS
Rætt við Ólöfu Pétursdóttur um starfsemi ráðsins
Viðtal: Sigríður Hjartar
Jafnréttisráð var stofnað með lögum
nr. 78, 31. maí 1976 og er því 10 ára.
Fyrsti formaður ráðsins var Guðrún
Erlendsdóttir lögfræðingur, þá tók við
Guðríður Þorsteinsdóttir lögfræðing-
ur, en nú hefur Ólöf Pétursdóttirtekið
við formannsstörfum. Af því tilefni
var hún tekin tali.
- Hvenœr tókst þú við formanns-
starfinu, Ólöf?
Ég tók við því í nóvember 1985.
- Við hvað hefurþú starfað?
Ég lauk lögfræðiprófi frá Háskóla
íslands 1975. Þá réðist ég sem fulltrúi
hjá Dóms- og kirkjumálaráðuneytinu
og var skipuð deildarstjóri nokkrum
árum síðar. Þar starfaði ég uns ég var
skipuð héraðsdómari við bæjarfógeta-
embættið í Kópavogi í september
1984.
- Nú gegnir þú fullu starfi auk for-
mennsku í Jafnréttisráði?
Já, héraðsdómarastarfið er vissu-
lega fullt starf. Formannsstarfiö hefur
alltaf verið aukastarf þeirra, sem því
hafa gegnt. En þetta er í reynd mjög
krefjandi starf og þyrfti að gefa því
meiri tíma en unnt er með þessu móti.
- Ert þú auk þess með heimili?
Heimiliö þykir kannski ekki stórt,
þar sem við hjónin erum barniaus. En
á s.l. 8 árum hafa búið hjá okkur 2-3
unglingar að norðan sem eru í skóla í
bænum að vetrarlagi.
- Eg tek eftir að allir formennirnir
hafa verið lögfrœðingar, er kveðið svo
á í lögum?
Það var skilyrði þar til í fyrra. Þess í
stað er nú skilyrði að starfsmaður á
skrifstofu ráðsins hafi lögfræði-
menntun. Engu að síður tel ég mjög
æskilegt að formaðurinn sé lögfræð-
ingur. Ráðið fjallar oft um lögfræðileg
efni og tel ég því æskilegt að formaður-
inn hafi lögfræðilega þekkingu sjálfur.
Framkvæmdastjóri Jafnréttisráðs,
Elín Pálsdóttir Flygenring, er lög-
fræðingur og hún er okkur ómetan-
legur styrkur. Reyndar vill svo til að
fulltrúar ASÍ og VSÍ eru báðir lög-
fræðingar, en auðvitað er nauðsynlegt
að fulltrúar ráðsins hafi fjölbreyttan
bakgrunn til að auðvelda starf þess.
- Hvernig er Jafnréttisráð skipað?
Upphaflega var ráðið skipað 5
mönnum til þriggja ára, en með laga-
breytingum í fyrra eru 7 fulltrúar
skipaðir til tveggja ára. Hæstiréttur
skipar formann, félagsmálaráðherra
varaformann, en ASÍ, BSRB, VSÍ,
Kvenréttindafélag Islands og Kvenfé-
lagasamband íslands sinn fulltrúann
hvert, en tveir þeirra síðasttöldu eru
nýir.
- Hver er helsti tilgangur jafnréttis-
laganna?
Tilgangur laganna er aö koma á
jafnrétti og jafnri stöðu kvenna og
karla á öllum sviðunt og tryggja þeim
jafna möguleika til menntunar og
atvinnu. Konum og körlum skulu
greidd jöfn laun og skulu njóta sömu
kjara fyrir jafnverðmæt störf og laus
störf skulu opin báðum kynjum jafnt.
- Hefur ráðið ákveðna starfsáœtl-
un?
Ráðið á að vinna framkvæmdaáætl-
42