Fréttablaðið - 21.12.2010, Blaðsíða 4
4 21. desember 2010 ÞRIÐJUDAGUR
Vegna mynda sem birtust með
umfjöllun Fréttablaðsins um Veður-
stofu Íslands síðastliðinn laugardag
vill Veðurstofan taka fram að myndin
af hvalrekanum á Skagaströnd í jan-
úar 1918 er tekin af Evald Hemmert,
kaupmanni á Skagaströnd. Afkom-
andi hans sendi hana, ásamt fleiri
myndum Evalds af hvalrekanum,
til Veðurstofunnar, sem er því ekki
rétthafi myndarinnar. Í þessu tilviki
láðist að láta blaðamann Fréttablaðs-
ins vita og eru hlutaðeigandi beðnir
afsökunar.
ÁRÉTTING
DÓMSMÁL Ógrynni af nýjum upp-
lýsingum hefur komið fram í máli
Baldurs Guðlaugssonar, fyrrver-
andi ráðuneytisstjóra, við rann-
sókn lögreglu og hjá Fjármála-
eftirlitinu (FME) frá því að FME
ákvað að hætta fyrri rannsókn
sinni á málinu vorið 2009. Þetta
sagði Björn Þorvaldsson, sem fer
með málið fyrir hönd sérstaks
saksóknara, fyrir dómi í gær þar
sem tekist var á um það hvort vísa
skyldi málinu frá dómi.
Baldur er ákærður fyrir að
hafa nýtt sér innherjaupplýsing-
ar um stöðu Landsbankans sem
hann öðlað -
ist í starfi sínu
sem ráðuneyt-
isstjóri þegar
hann seldi bréf
í bankanum
fyrir 192 millj-
ónir rétt fyrir
bankahrun.
Karl Axels-
son, lögmað-
ur Ba ldurs ,
krefst þess að málinu verði vísað
frá þar sem ekki megi rannsaka
sama málið tvisvar. FME hafi
lokið rannsókn á því og nýja málið
byggi nær eingöngu á sömu upp-
lýsingum og hið fyrra. Þessu vísar
Björn á bug.
Karl fór fram á að ef málinu
yrði ekki vísað frá yrði að minnsta
kosti hreinsað til í ákærunni og
þeir liðir hennar felldir út sem
einungis byggðust á upplýsingum
sem lágu fyrir við fyrri rannsókn.
Björn benti á að ekki væri ákært
í mörgum liðum, heldur væri ein-
faldlega gert grein fyrir upplýs-
ingunum sem Baldur bjó yfir í sex
liðum.
Úrskurðar um frávísunarkröf-
una er að vænta eftir áramót. - sh
Tekist á um frávísunarkröfu Baldurs Guðlaugssonar fyrir dómi:
Vill að hreinsað verði til í ákærunni
BALDUR
GUÐLAUGSSON
Afköst þingsins
Frumvörp
Samþykkt 32
Bíða 1. umr. 34
Í nefnd 40
Bíða 2. umr. 6
Samtals 112
Þingsályktanir
Samþykkt 3
Bíða umr. 50
Í nefnd 37
Samtals 90
STJÓRNSÝSLA Mannanafnanefnd
hefur hafnað ósk um hægt verði
að breyta rithætti ættarnafnsins
Tamimi í Tamímí.
„Í lögum um mannanöfn eru
engar beinar heimildir til að
leyfa breyttan rithátt ættar-
nafna,“ bendir Mannanafna-
nefnd á í úrskurði sínum. Nefnd-
in kveður slíka breytingu myndu
verða leið framhjá banni við að
taka upp nýtt ættarnafn hérlend-
is. „Verður því ekki á slíka beiðni
fallist nema fyrir henni sé bein
heimild í lögum,“ segir nefnd-
in. Heimilt er að laga kenninafn
sem dregið er af erlendu eigin-
nafni foreldris að íslensku máli
en nefndin segir þá heimild ekki
taka til ættarnafna. - gar
Breyttur ritháttur bannaður:
Tamimi verður
ekki Tamímí
ALÞINGI Alþingi samþykkti 35 mál
frá því að það var sett 1. október
og til frestunar á laugardag.
32 frumvörp urðu að lögum
og þrjár þingsályktunartillögur
voru samþykktar.
Af frumvörpunum voru 28
stjórnarfrumvörp, þrjú voru flutt
af nefndum og eitt af meirihluta
þingnefndar. - bþs
202 mál lögð fram á þinginu:
35 mál afgreidd
á haustþinginu
LÖGREGLUMÁL Fjórir menn réðust
á mann fyrir utan skemmtistað-
inn Hvíta húsið á Selfossi aðfara-
nótt síðastliðins laugardags. Fórn-
arlambið, sem er Spánverji, hlaut
brot á olnboga.
Í árásinni missti Spánverjinn
veski sitt og einn fjórmenninganna
hirti það. Í veskinu var greiðslu-
kort, ökuskírteini og dvalarleyfi
mannsins. Lögreglan á Selfossi
biður alla þá sem voru vitni að
þessari fólskulegu árás eða hafa
einhverja vitneskju um hana að
gefa sig fram í síma 480-1010. - jss
Fjórir réðust á einn:
Beinbrutu og
rændu mann
FÓLK Ásatrúarmenn halda jól í
dag og fagna því að sól fer hækk-
andi á lofti. Af þessu tilefni fer
sólstöðuhátíð Ásatrúarfélagsins
fram við Nauthólsvík í dag
klukkan 18.
Gengið verður með kyndla inn
í rjóðrið þar sem stytta Svein-
björns Beinteinssonar stendur og
fer athöfnin þar fram.
Allir eru velkomnir á hátíðar-
höldin og segir í tilkynningu frá
félaginu að undanfarin ár hafi
margir Íslendingar notað tæki-
færið og fagnað hækkandi sól
hvort sem þeir eru heiðnir eða
ekki. Á eftir halda svo ásatrúar-
menn jólablót í Mörkinni 6 þar
sem börn og fullorðnir snæða
jólaverð og njóta skemmtiatriða.
Fagna hækkandi sól:
Ásatrúarmenn
halda jól í dag
SÓLSTÖÐUHÁTIÐ Hilmar Örn Hilmars-
son allsherjargoði á sólstöðuhátíð fyrir
fáeinum árum.
GENGIÐ 20.12.2010
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
208,2445
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
116,65 117,21
181,3 182,18
153,27 154,13
20,572 20,692
19,482 19,596
17,022 17,122
1,3911 1,3993
178,47 179,53
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hendrik Sigurðsson hendrik@frettabladid.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is
ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Hallgrímsdóttir sigridurh@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is
RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is
Læknastö›in, Kringlunni • Sími 568 7777 • heyrnarstodin.is
Ókeypis
heyrnarmæling
úrvals
heyrnartæki
og afbragðs þjónusta!
EFNAHAGSMÁL „Við höfum alltaf litið
svo á að það þurfi að endurmeta
peningastefnuna í kjölfar hrunsins.
Skýrsla Seðlabankans er innlegg í
þá vinnu,“ segir Árni Páll Árnason,
efnahags- og viðskiptaráðherra.
Í skýrslu Seðlabankans sem
birt var í gær og afhent ráðuneyti
Árna Páls kemur fram að mis-
brestur hafi verið í framkvæmd
peningastefn-
unnar frá því
krónan var sett
á flot og verð-
bólgumarkmið
tekið upp í mars
2001. Bankinn
útilokar ekki að
hagkvæmt sé að
falla frá sjálf-
stæðri peninga-
stefnu. Ef af því
verði sé heppi-
legast út frá hagrænum sjónar-
miðum að festa gengi krónunnar
við evru.
Seðlabankinn vann skýrsluna að
eigin frumkvæði og ber hún heit-
ið Peningastefnan eftir höft. Árni
Páll segir skýrsluna verða innlegg
í þá vinnu stjórnvalda sem fram
undan sé næstu mánuði; fyrir mars
á að leggja fram áætlun um end-
urskoðun á afnámi gjaldeyrishafta
og næsta sumar rennur efnahags-
áætlun Alþjóðagjaldeyrissjóðsins
og stjórnvalda hér sitt skeið.
Í skýrslunni er fjallað um árang-
urinn af peningastefnu bankans
og fljótandi gengi síðastliðin níu
ár. Taldar eru nokkrar hugsanleg-
ar ástæðu fyrir slökum árangri
peningastefnunnar; gerð íslensks
þjóðarbúskapar geri sjálfstæða
peningastefnu erfiða viðfangs,
óvenjulegar aðstæður á bæði
alþjóðlegum og innlendum efna-
hagsmálum og fjármálamörkuð-
um og misbrestur í framkvæmd
peningastefnunnar, sem hafi ekki
tekist að ávinna sér nægilegan
trúverðugleika. Þá hafi vaxandi
alþjóðavæðing innlends fjármála-
kerfis og ofvöxtur þess orðið til
þess að veikja miðlun peninga-
stefnunnar, skapa áhættu í fjár-
málakerfinu og magna gengis-
sveiflur.
Ofan á allt var stefna í opinber-
um fjármálum á skjön við stefnu
Seðlabankans í peningamálum og
það hefur þyngt róðurinn, að sögn
Seðlabankans.
Seðlabankinn telur að verði fall-
ið frá fljótandi gengi sé heppileg-
ast að tengja krónuna við gengi
evru. Fasttenging við evru eða
einhliða upptaka hennar sé ekki
ákjósanlegur kostur. Fremur verði
upptakan að koma í framhaldi af
aðild Íslands að Evrópusamband-
inu og inngöngu í myntbandalagið.
jonab@frettabladid.is
ÁRNI PÁLL
ÁRNASON
HORFA TIL NÝRRA TÍMA Erfiðlega gekk að framfylgja peningastefnu Seðlabankans í
alþjóðlegu umróti á fjármálamörkuðum, að því er segir í nýrri skýrslu bankans. Hér
eru þeir Arnór Sighvatsson aðstoðarseðlabankastjóri, Már Guðmundsson seðlabanka-
stjóri og Þórarinn G. Pétursson, aðalhagfræðingur bankans. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Seðlabankinn mælir
með evrutengingu
Illa hefur gengið að stýra hagkerfinu í alþjóðlegu fjármálaumhverfi með einum
minnsta gjaldmiðli í heimi í þann tæpa áratug sem krónan hefur verið á floti.
Þetta er grunntónn skýrslu Seðlabankans um árangur peningastefnunnar.
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
16°
2°
-6°
-5°
1°
4°
-3°
-3°
23°
1°
16°
2°
21°
-15°
2°
12°
-6°Á MORGUN
Strekkingur á V-fjörðum,
annars hægari.
ÞORLÁKSMESSA
Allhvasst með S-strönd,
annars hægari.
-2 -6
-5 -4
-8
-5
-3 -8
-11
-9
-6
-5
-7
-6
-7
-6
-8
-5
-7
-3
7
11
11
10
7 15
6
12
8
7
6
9
-14
KALDIR DAGAR
Það verður kalt
á landinu næstu
daga. Frost verður
víða á bilinu 3 til
14 stig í dag og
litlar breytingar á
því til morguns.
Kaldast verður
inn til landsins en
mildast syðst. Á
Þorláksmessu lítur
svo út fyrir að dragi
heldur úr mestu
frosthörkunum.
Ingibjörg
Karlsdóttir
veður-
fréttamaður