Fréttablaðið - 21.12.2010, Blaðsíða 26

Fréttablaðið - 21.12.2010, Blaðsíða 26
26 21. desember 2010 ÞRIÐJUDAGUR Í liðinni viku var gengið frá sam-komulagi um leiðir við úrlausn á skuldavanda lítilla og meðalstórra fyrirtækja. Það byggir á núver- andi sameiginlegum reglum fjár- málafyrirtækjanna auk þess sem viðmið eru sett um niðurfærslu skulda og fjárhagsskipan í kjöl- farið. Jafnframt tekur ríkissjóður þátt með breytingum á meðhöndl- un skattalegra áhrifa og upp- gjöri opinberra gjalda. Væntingar standa til að lækkun á skuldabyrði fyrirtækja á grundvelli samkomu- lagsins skapi forsendur fyrir nýrri fjárfestingu og atvinnusköpun á vettvangi lítilla og meðalstórra fyrirtækja og því leggi aðgerðin verulega að mörkum til viðsnún- ings íslensks efnahags- lífs á næstu misserum. Samkvæmt nýlegri rannsókn Capacent um stöðu fyrirtækja og við- horf til efnahagsástands- ins telur fimmti hver stjórnandi miklar líkur á að hans fyrirtæki þurfi að ganga gegnum fjár- hagslega endurskipu- lagningu með aðkomu viðskiptabanka og/eða lánardrottna á næstu 12 mánuðum. Þetta á nokkuð jafnt við óháð stærð fyrirtækjanna. Auk þess benti Alþjóða gjaldeyris sjóðurinn nýlega á að tæplega 40% heildarfjárhæðar lána viðskiptabankanna til lítilla og meðalstórra fyrirtækja væru í van- skilum eða líkleg til að lenda í van- skilum. Af þessu má vera ljóst að skulda aðlögun margra fyrirtækja er nauðsynleg og það samkomu- lag sem nú hefur verið gert mun vonandi auðvelda líf vænlegum fyrirtækjum að finna ásættan- lega lausn. Stjórnendur lítilla og meðal- stórra fyrirtækja í skuldavanda standa nú frammi fyrir mati á því hvort efnisatriði þessa nýja sam- komulags henti þeirra fyrirtæki og hvernig nýta megi úrræðin. Í því samhengi er mikilvægt að hafa hugfast að lækkun skulda er sjaldnast nægjanleg ein og sér án annarra aðgerða ef ætlunin er að ná fram viðvarandi rekstrarbata. Um 50% þeirra sem telja sig þurfa að ganga gegnum fjárhagslega endurskipulagningu á næstu tólf mánuðum telja jafnframt hættu á lausafjárvanda á næstu þrem- ur mánuðum, samkvæmt framan- greindri rannsókn Capacent. Eftir sem áður er því nauðsynlegt að fara gaumgæfilega yfir hvort fyrir- tækið eigi raunhæfan möguleika á áframhaldandi rekstri. Hjá fyrirtækjum þar sem for- svarsmenn telja mögulegt að ná fram skuldaaðlögun og viðsnún- ingi rekstrar þarf nauðsynlega að gera stöðumat til að öðlast yfirsýn og leggja upp áætlun um framhaldið. Byggt á stöðumatinu þarf að skilgreina vel hvað þarf að gera, hvernig það verður gert og hverjir sjá um framkvæmd- ina. Framundan er því vinna við mat á eignum og rekstrarvirði sem byggir á raunhæfum og vel framsettum áætlunum. Fjármála- fyrirtækin munu þurfa slík gögn til að taka afstöðu til mögulegrar skuldaaðlögunar, en þau eru jafn nauðsynleg fyrirtækjunum sjálf- um til grundvallar eigin aðgerð- um. Þessar áætlanir þurfa að taka á tekjumyndun, rekstrarkostnaði, skipulagi, fjármálastjórn og fela í sér tillögur og rök- semdir að baki þeirri fjárhagsskipan sem að er stefnt. Í samkomu- laginu er gert ráð fyrir að fyrirtækin standi sjálf skil á viðskipta- skuldum. Hjá mörgum fyrirtækjanna þarf því samhliða að losa um óþarfa fjárbindingu á efnahagsreikningi, styrkja tekjustreymi og semja um endurgreiðsl- ur við aðra lánardrottna en lánveitendur. Í þessu samhengi er mikil- vægt að taka veltufjár- muni föstum tökum, t.d. með því að ganga í herta innheimtu eða sölu viðskiptakrafna, sölu gamalla birgða og samninga um gjald- frest hjá birgjum. Meðal mikilvægustu hagsmuna- aðila sem vinna þarf með eru starfsfólk, viðskiptabanki og aðrir lánveitendur, birgjar og viðskipta- vinir sem treysta á vörur og þjón- ustu fyrirtækisins. Ef forsvars- menn fyrirtækis í rekstrarvanda hafa ítrekað skapað væntingar um rekstrarbata eða endurgreiðsl- ur skuldbindinga án þess að sýna árangur er líklegt að verkefnið framundan verði erfiðara en ella. Við slíkar aðstæður getur verið nauðsynlegt að fá nýja aðila að borðinu til þess að leiða verkefnið. Sé hugað að viðsnúningi í rekstri samhliða því sem ný úrræði við lausn á skuldavanda fyrirtækja eru nýtt aukast líkurnar til muna á að fleiri íslensk fyrirtæki komist á beinu brautina á ný. Lækkun skulda er sjaldnast nægjanleg ein og sér án annarra aðgerða ef ætlunin er að ná fram viðvarandi rekstrarbata. Viðsnúningur rekstrar við lækkun skulda Staða fyrirtækja Sigurður Hjalti Kristjánsson verkfræðingur og ráðgjafi hjá Capacent Þröstur Sigurðsson viðskiptafræðingur og ráðgjafi hjá Capacent Á Alþingi hafa komið fram hug-myndir um nýja heilbrigðis- stétt til að leysa þjónustuvanda hjá heilsugæslustöðvum (Fréttablaðið 9. des. sl.). Fram kom að þingmenn allra flokka voru sammála um mikil- vægi þess að sem flestir sjúkling- ar leituðu til heilsugæslunnar með vandamál sín áður en sótt væri í dýrari þjónustu hjá sérfræðilæknum eða á sjúkrahúsum. Þannig er heil- brigðiskerfið einmitt byggt upp, því heilsugæslustöðvar eru grunnþjón- usta sem á að vera fyrsti viðkomu- staður neytenda. Flestir sem leita til heilsugæslustöðva panta tíma hjá læknum vegna sjúkdómseinkenna eða veikinda og þurfa nú í mörgum tilfellum að bíða lengur en áður til að komast að. Margir átta sig ekki á því, að á flestum heilsugæslustöðv- um starfa hjúkrunarfræðingar sem vinna með skjólstæðingum við að leysa heilsuvanda eða vísa áfram til annarra heilbrigðisstétta eins og þurfa þykir. Best væri að hugsa vel um að halda heilsunni í stað þess að þurfa að laga það sem fer úrskeiðis, líkt og markvissar eldvarnir fyrir- byggja stórbruna. Eru þingmenn og þjóðin tilbúin til að breyta áherslum frá „sjúkdómavæðingu“ í „heilsu- væðingu“ með því að fjölga fyrir- byggjandi úrræðum og hefja mark- vissa heilsueflingu? Oft var þörf en nú er nauðsyn á að efla forvarnir og stunda heilsu- samlegt líferni til að fyrirbyggja heilsutap og sjúkdóma. Samkvæmt niðurstöðum rannsókna Hjarta- verndar hefur meðalþyngd Íslend- inga aukist jafnt og þétt undanfarin 40 ár með alvarlegum afleiðing- um, t.d. vaxandi offitu, hjartasjúk- dómum og sykursýki-2. Þótt þessi staðreynd hafi lengi verið þekkt og mikið rædd hefur vandamálið ekki lagast, þrátt fyrir að stjórn- völd hafi t.d. sett á sykurskatt til að draga úr mikilli sykurneyslu lands- manna. Sjálfskapaðir sjúkdómar fara vaxandi vegna kyrrsetu og óhollra lífshátta. Fólk þarf að taka ábyrgð á eigin heilsu. Þekkingin á því hvernig bæta má heilsuna er til staðar hjá fagfólki en auka þarf almenna heilsufræðslu, heilsulæsi, stuðning og ráðgjöf til almennings. Einnig þarf að athuga hvernig fjár- munum sem fara til heilbrigðismála er varið. Samkvæmt nýlegum tölum OECD eru opinber útgjöld til heil- brigðismála sem hlutfall af lands- framleiðslu hæst á Íslandi (8,8%) af OECD-ríkjum (6,4%). Hlutdeild hins opinbera í heildarútgjöldum til heilbrigðismála á Íslandi (83,5%) er umtalsvert hærri en að meðaltali í OECD-ríkjunum (73%). Heildar- útgjöld til heilbrigðismála á hvern íbúa á Íslandi nema 3.159 Banda- ríkjadölum sem jafngildir um 370 þúsund íslenskum krónum á mann. Bandaríkjamenn hafa reiknað út að fyrir hvern dollar sem þeir nota til forvarna spara þeir 3,58 dollara í sjúkraþjónustu. Félag íslenskra hjúkrunarfræð- inga hefur lagt áherslu á að hjúkr- unarfræðingar gangi á undan með góðu fordæmi og efli eigin heilsu til að geta verið í stakk búnir til að hjúkra, ráðleggja og hvetja almenn- ing til heilsueflingar. Niðurstöður vinnuhópa Heilsuþings félags- ins þann 24. september sl. sýna að hjúkrunarfræðingar vilja auka heilsueflandi þjónustu og úrræði svo almenningur hafi val sem hent- ar hverjum og einum. Leggja þarf aukna áherslu á samvinnu stjórn- valda, stofnana, fyrirtækja, fag- fólks og almennings til að draga úr lífstílssjúkdómum. Þörf er fyrir samvinnu stjórnvalda og heilbrigð- isstarfsfólks til framkvæmda sem byggjast á þeim raunveruleika sem við búum við í dag, með framtíðar- hag að leiðarljósi. Hjúkrunarfræð- ingar hjálpa fólki til sjálfshjálp- ar. Þeir sinna forvörnum eins og almennri heilsufræðslu og heilsu- vernd, leiðbeina fólki með leiðir til að t.d. lækka blóðþrýsting og fyrir- byggja fylgikvilla sjúkdóma eins og sykursýki. Til að bæta heilsu og auka vellíðan þarf oft að bæta eigin lífs- stíl. Það má til dæmis gera með 30 til 60 mínútna hreyfingu á dag, að borða hollt fæði í hæfilegu magni, að forðast sætindi og mettaða fitu, að auka neyslu á grófu korni og að borða 5-8 skammta af ávöxt- um og grænmeti á dag. Nauðsyn- legt er að fá góðan nætursvefn (7 til 8 tíma) og drekka nóg af vatni (6 til 8 glös á dag) en spara gosið. Samkvæmt niðurstöðum rann- sókna eru lífslíkur að miklu leyti í okkar höndum (70-80%) þar sem framtíðarheilsa ræðst að mörgu leyti af daglegum venjum. Það er okkar val hvernig lífsstíl við velj- um. Velur þú heilsusamlegt líf eða líf með áhættuþáttum sem dregur úr vellíðan til lengri tíma og lífs- líkum? Hjúkrunarfræðingar eru til þjón- ustu reiðubúnir (á heilsugæslu- stöðvum, stofnunum og í samfélag- inu) og vilja hjálpa samborgurum sínum til sjálfshjálpar. Víðtæk þekking og reynsla gerir stéttinni kleift að meta andlega, líkamlega og félagslega heilsu skjólstæðinga og taka áhrifaþætti umhverfisins inn í heildarmyndina til að fyrir- byggja heilsutjón og finna lausnir á vanda. Einstaklings- og hópfræðsla ásamt ráðgjöf til heilsueflingar eru stór þáttur af starfi hjúkrunar- fræðinga sem bera hag skjólstæð- inga fyrir brjósti. Foreldrafræðsla ljósmæðra og hjúkrunarfræðinga er mikilvægur þáttur í heilsuvernd fjölskyldunnar. Foreldrar bera ábyrgð á heilsu barna sinna. Þeir þurfa að vera góð fyrirmynd og ala börnin upp á þann hátt að þau verði fær um að efla og viðhalda eigin heilbrigði, sem er undirstaða hamingju og velferðar. Til að þjóð- in megi njóta góðrar heilsu í fram- tíðinni þarf sameiginlegt átak allra í samfélaginu og eru hjúkrunar- fræðingar tilbúnir til að leggja sitt af mörkun til að svo megi verða. Efling heilsu og hjúkrunarþjónusta Heilsugæsla Dr. Sólfríður Guðmundsdóttir Rannsóknastofnun í hjúkrunarfræði Einstaklings- og hópfræðsla ásamt ráðgjöf til heilsueflingar eru stór þáttur af starfi hjúkr- unarfræðinga sem bera hag skjólstæðinga fyrir brjósti. AF NETINU Jólakúkur kapítalsins Í liðinni viku óku flutningabílar frá Vífilfelli um nokkur úthverfi Hafnarfjarðar, skreyttir í bak og fyrir, til að fólk gæti fallið fram og tilbeðið þá í dýrð sinni. Þessi auglýsingamennska hefur þótt ákaflega jólaleg að sumra mati og hamast fjölmiðlar við að vekja athygli á uppátækinu, sjálfsagt gegn sanngjörnu gjaldi. En þeir fimmtán sem ákváðu að ganga á undan bílalestinni niður Skólavörðustíg, voru ekki í sama jólaskapi og kókveldið. Frá því segir í frétt á Pressunni. Þar vakti einkum þessi setning athygli mína: „Þá fór það sérstaklega fyrir fólki með börn sem komu í þeim eina tilgangi að sjá jólalestina aka niður strætin í allri sinni dýrð….“ Ekki fetti ég fingur út í það sem fullorðið fólk gerir sér til skemmt- unar, en að draga börn niður í miðborg Reykjavíkur til að horfa á gosdrykkjaflutningabíla aka um göturnar jafngildir hundraðogelleftu meðferðinni og ber vitni um lægra greindarstig en nemur númeri á háhæluðum fjallgönguskóm. Malbein.net Gísli Ásgeirsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.