Fréttablaðið - 21.12.2010, Blaðsíða 38
Keilir heilsukoddi hefur sérstaka lögun sem ætlað er að stuðla að réttri
svefnstöðu. Auk sívals púða undir hálsinn eru þrístrendir púðar sem veita
hliðarstuðning við höfuðið. Hann er færanlegur þannig að hægt er að víkka
og þrengja hann að vild.
Hulda Sveinsdóttir er komin með hönnunarvernd á Íslandi og innan ESB-
landa. Hún hlaut verðlaunin Special Nomination Award í Helsinki í október
2009 fyrir uppfinninguna.
Efnið í koddanum er þrýstijöfnunarefni, Memory foam, fyrst framleitt af
NASA í Bandaríkjunum. Keilir bætir notagildi annarra kodda með því að
hann er settur ofan á til frekari stuðnings. Hann er góður til ferðalaga því
hverjum kodda fylgir handhægur ferðapoki.
Koddinn er seldur í Svefni og heilsu, bæði í Reykjavík og á Akureyri og
líka á heimasíðunni ravendesign.is.
Nýr heilsukoddi
NÝR HEILSUKODDI ER KOMINN Á ÍSLENSKAN MARKAÐ. HANN NEFNIST KEILIR
ENDA Á HANN UPPRUNA SINN Á SUÐURNESJUM, NÁNAR TILTEKIÐ HJÁ HULDU
SVEINSDÓTTUR HÖNNUÐI HJÁ FYRIRTÆKINU RAVEN DESIGN.
Verðlaunakoddinn Keilir eftir Huldu Sveinsdóttur, hönnuð og handverkskonu í
Raven design.
Hlutfall keisaraskurða í fæðingum í Bandaríkjunum eykst
sífellt. Árið 2008 voru 32,3 prósent allra barna í Bandaríkjunum
tekin með keisara. Alþjóða heilbrigðisstofnunin hefur mælt með
að hlutfall keisaraskurða sé ekki meira en 15 prósent.
Kolbrún Björnsdóttir grasalæknir
hlaut á dögunum viðurkenningu
Náttúrulækningafélags Reykjavík-
ur en henni er ætlað að styðja við
bakið á þeim sem leggja sig fram
um að stuðla að góðri heilsu og for-
vörnum. Kolbrún fær viðurkenn-
inguna fyrir opnun fyrsta jurta-
apóteksins á Íslandi, þar sem hún
leggur áherslu á heildrænar lækn-
ingar með jurtum og réttu matar-
æði. Auk hennar var Kolbrún í
þann mund að fá þær fréttir að hún
hefði verið valin í tuttugu manna
úrslit úr hópi 250 umsækjendum
sem hlutu styrk frá Rannís til að
vinna þróunarverkefni í sumar
Verkefni hennar snýr að þróun
næringarblandna úr íslenskum
afurðum og verða úrslitin kunn-
gjörð í febrúar.
Kolbrún segir viðurkenningu
Náttúlækningarfélags Reykja-
víkur mikinn heiður. „Ég lít á
þetta sem viðurkenningu á því
sem ég hef verið að gera undan-
farin ár. Þá vonast ég til að þetta
verði til þess að kynna þessa leið
fyrir fleirum, en mörgum kemur
á óvart hversu mikill fjöldi fólks
sækir í grasalækningar. Ég er
til að mynda bókuð í einkavið-
töl út febrúar auk þess sem það
er alltaf nóg að gera í búðinni.“
Kolbrún hefur starfað sem grasa-
læknir í sautján ár og hefur ekki
tölu á þeim fjölda fólks sem hún
hefur fengið til sín í ráðgjöf og
viðtöl. „Áður en ég opnaði búðina
árið 2004 hafði ég fengið á áttunda
þúsund til mín í viðtöl en eftir það
hætti ég að telja.“
Kolbrún lætur sér þó ekki nægja
að leggja stund á ráðgjöf og búð-
arrekstur heldur er bókaútgáfa
einnig á næsta leiti. Í bókinni, sem
hefur ekki ennþá hlotið nafn en er
væntanleg í næsta mánuði, kynn-
ir hún sex mánaða prógramm sem
er ætlað að laga örverubúskapinn í
líkamanum. „Ég vil meina að hann
sé í ólagi hjá flestum enda erum
við að gera svo margt sem er ekki í
lagi. Ástæðan fyrir því að ég ákvað
að skrifa þessa bók er sú að ég fæ
til mín fjölda fólks sem hefur tekið
sig á og farið á hreinsandi matar-
æði í örfáa mánuði en síðan gefist
upp. Það er einfaldlega ekki nóg og
er viðkvæmnin þá enn til staðar.
Í bókinni er í fyrstu útskýring
á því fyrir hverja prógramm-
ið er hugsað og af hverju ætti að
fylgja því. Þá er þar að finna alls
kyns fróðleik um hvernig matur-
inn virkar og hvernig á að setja
hann saman til að næringin nýtist
sem best. Að því loknu er að finna
prógramm fyrir hvern mánuð og
fylgja uppskriftir eftir Kolbrúnu
og Sólveigu Eiríksdóttur hverj-
um fyrir sig. Prógrammið byrjar
á því að fæðutegundir eins og ger,
sykur og glútein eru teknar út en
síðan eru sumar þeirra settar inn
aftur. Uppskriftirnar eru allt frá
því að vera hráfæðisréttir upp í
kjötsúpur. vera@frettabladid.is
Bókaútgáfa á næsta leiti
Kolbrún Björnsdóttir opnaði eina jurtaapótekið á Íslandi fyrir sex árum. Þar býður hún upp á ráðgjöf og
fjölbreyttar jurtaafurðir og hefur varla undan. Hún hlaut viðurkenningu fyrir framlag sitt á dögunum.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Lengi vel fengust vörur
Kolbrúnar einungis
í Jurtaapótekinu á
Laugavegi 2 en þær
eru nú einnig fáanleg-
ar í Akureyrarapóteki.
„Mörgum kemur á óvart
hversu mikill fjöldi fólks
sækir í grasalækningar.“
Lín Design Laugavegi 176 Sími 533 2220 www.lindesign.is
Eyrarrós
12.980 kr
Sængurfatnaður
frá kr 6.990 kr
Sendum frítt fram
að jólum!
Tímapantanir
534 9600Hlíðasmári 11, 201 Kópavogur -www.heyrn.is
HEYRNARÞJÓNUSTA
Nýju ReSound heyrnartækin endurvekja tilfinningu fyrir
hljóðum sem berast úr hvaða átt sem er á svipaðan hátt
og þegar skipt er úr einföldum steríótækjum með
tveimur hátölurum í kringóma (surround) heimabíó með
hátalara til allra átta.
Ný tækni . Betra verð . Fagleg þjónusta
Frí ráðgjöf í mars og apríl
ReSound heyrnartækin setja mann í miðpunkt
hljóðheimsins sem maður hrærist í. Þegar maður getur
fylgst betur með hljóðum sem berast úr öllum áttum
nýtur maður góðs hljóms mun betur. Auðveldara er að
átta sig á hvaðan hljóðið berst og maður getur notið
þess að tala við fólk þó hávaði sé í umhverfinu.
SURROUND
KRINGÓMA