Fréttablaðið


Fréttablaðið - 21.12.2010, Qupperneq 16

Fréttablaðið - 21.12.2010, Qupperneq 16
 21. desember 2010 ÞRIÐJUDAGUR ICELANDAIR GROUP HLUTAFJÁRÚTBOÐ Reykjavík, 21. desember 2010. Í lýsingu Icelandair Group kt. 631205-1780 („félagið“), sem samanstendur af útgefanda- lýsingu dagsettri 28. október 2010, verðbréfalýsingu og samantekt dagsettum 7. desember 2010, sem útbúin var í tengslum við yfirstandandi almennt útboð, koma fram upplýsingar sem félagið hefur nú uppfært. Í kafla 27.2 í útgefandalýsingu félagsins frá 28. október 2010, eins og hún var uppfærð með verðbréfalýsingu dagsettri 7. desember 2010, kemur fram að samningsfyrirvarar sem tengjast fjárhagslegri endurskipulagningu félagsins ættu að verða uppfylltir þann 15. desember 2010. Félaginu varð ljóst að ekki næðist að ljúka þessum samningsfyrirvörum á tilsettum tíma og var því ákveðið að útbúa viðauka við fyrrgreinda lýsingu félagsins. Í viðaukanum kemur fram að búist er við að þessum samningsfyrirvörum verði lokið í enda janúar 2011. Viðaukinn birtist þann 20. desember 2010. Athygli er vakin á því að þeir einstaklingar eða lögaðilar sem hafa skráð sig fyrir nýjum bréfum í félaginu í yfirstandandi almennu útboði hafa rétt til að afskrá sig, sbr. 2. mgr. 46. gr. laga nr. 108/2007. Heimild til að afskrá sig gildir í tvo virka daga frá birtingu viðaukans. Þeir sem óska eftir að afskrá sig geta nálgast viðeigandi eyðublað á www.isb.is/icelandair eða sett sig í samband við Eignastýringu Íslandsbanka í s: +354-440-4920. Almennt hlutafjárútboð Icelandair Group á 500 til 1.059 milljónum nýrra hluta í félaginu hófst klukkan 10.00 þann 8. desember og lýkur fimmtudaginn 23. desember klukkan 16.00. Í tilkynningu frá Icelandair Group þann 7. desember kom fram að engir nýir hlutir verði boðnir til kaups ef tilboð í færri en 500 milljónir hluta berast. Útboðsgengið verður 2,5 kr. á hlut. Einungis er hægt að greiða fyrir hluti með reiðufé í íslenskum krónum. Allir nýir hlutir eru í sama flokki. Hlutirnir gefa allir sömu réttindi og eru sambærilegir við eldri hluti að öllu leyti. Viðaukinn var birtur á samskonar hátt og lýsingin og verður aðgengilegur á heimasíðu félagsins www.icelandairgroup.com/prospectus og einnig á skrifstofu félagsins á Reykjarvíkurflugvelli 101 Reykjavík, í 12 mánuði frá dagsetningu viðaukans. ÍS L E N S K A /S IA .I S /I C E 5 28 73 1 2/ 10 GROUP STJÓRNSÝSLA Lög um flutning mál- efna fatlaðra frá ríkinu til sveit- arfélaga voru samþykkt á laugar- dag – lokastarfsdegi Alþingis fyrir jól. Flutningurinn hefur verið lengi í bígerð en lagasetningin var loka- hnykkur vinnu sem hófst í febrú- ar 2007 að frumkvæði sveitar- félaganna. Undirbúning málsins má rekja aftur til 1996 þegar þingið ákvað að stefna bæri að yfirfærslunni. Fjórum árum síðar sigldi verkefn- ið í strand og lá óhreyft í sjö ár. Samkvæmt greinargerð frum- varpsins um flutninginn varðar hann um 2.500 einstaklinga sem fá þjónustu vegna fötlun sinnar. Að sögn Guðmundar Magnússon- ar, formanns Öryrkjabandalags Íslands, er þó um fleiri að tefla því ekki hafi allir fatlaðir notið þjónustu á vegum svæðisskrifstofa um málefni fatlaðra. Vegna flutningsins færast um 1.500 starfsmenn í rúmlega 1.000 stöðugildum frá ríkinu til sveitar- félaga. Við þessa ákvörðun hefur skipt- ing tekna milli ríkisins og sveitar- félaganna verið endurskoðuð. Fær- ast rúmlega tíu milljarðar króna af skatttekjum til sveitarfélaga. Þjónustuþættir sem sveitarfélög- in taka yfir eru sambýli, áfanga- staðir, liðveisla, hæfingarstöðv- ar, dagvistarstofnanir, verndaðir vinnustaðir og atvinna með stuðn- ingi, heimili fyrir börn og skamm- tímavistanir. Áfram hjá ríkinu verða náms- og starfsendurhæf- ing, Tölvumiðstöð fatlaðra, Múla- lundur, Blindravinnustofan og vinnustaðir Öryrkjabandalagsins. bjorn@frettabladid.is Sveitarfélögin taka yfir mál- efni fatlaðra Sveitarfélögin taka yfir þjónustu við fatlaða um áramót. Fjórtán ár eru frá samþykkt fyrstu laga um flutning málaflokksins. Tíu milljarðar af skatttekj- um færast frá ríkinu til sveitarfélaga. Á LEIÐ Í STRÆTÓ Umfangsmiklar breytingar verða á starfsemi sveitarfélaga með flutningi málefna fatlaðra til þeirra. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Guðmundur Magnússon, formaður Öryrkjabandalags- ins, telur yfirfærsluna ekki nægilega vel undirbúna. Í umsögn ÖBÍ eru gerðar athugasemdir við fjölda atriða, meðal annars að réttindagæsla sé með sóma, lögfest verði að fjármagn fylgi einstaklingum og að samráð við hagsmunasamtök verði bundið í lög. Að auki segir Guðmundur það sína skoðun að réttast hefði verið að fresta yfirfærslunni um eitt ár. „Það þarf að endurskoða heildarlöggjöf um málaflokkinn og ég hefði viljað að það hefði verið gert áður en til flutningsins kæmi. Sama á við um samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.“ Guðmundur segir að hvað sem þessum skoðunum hans líði og umsögn ÖBÍ muni bandalagið vinna af heilindum með sveitarfélögunum að yfir- færslu málaflokksins. „Við munum leggja okkur fram um að þetta gangi vel fyrir sig og höfum ráðið sérstakan starfsmann til að sjá um það. Sveitarfé- lögin virðast ætla að vanda sig og ég vil til dæmis hrósa þeim fyrir að senda starfsfólk á námskeið í fötlunarfræðum.“ Hefði viljað fresta þessu um eitt ár en munum vinna með sveitarfélögunum GUÐMUNDUR MAGNÚSSON DANMÖRK Fjöldahandtökur lögregl- unnar í Kaupmannahöfn vegna mót- mæla á loftslagsráðstefnunni fyrir ári voru ólögmætar. Héraðsdómur í Kaupmannahöfn komst að þessari niðurstöðu fyrir helgi. Lögreglan handtók 905 manns í fjöldamótmælunum hinn 12. desember í fyrra. Hendur fólks voru bundnar með plastböndum í stað handjárna. Fólkið þurfti að sitja í röðum á götu í allt að fjórar klukkustundir. Dómstóllinn segir að aðstæður fólksins hafi verið nið- urlægjandi og því brot á Mannrétt- indasáttmála Evrópu. Lögreglan var dæmd til að greiða þeim 250 manns sem kærðu handtökurnar skaðabæt- ur. Lögreglan hyggst áfrýja. - þeb Dómur fellur vegna framferði dönsku lögreglunnar: Ólöglegar handtökur FRÁ MÓTMÆLUNUM Í stað handjárna voru hendur mótmælenda festar með plastböndum. NORDICPHOTOS/AFP
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.