Fréttablaðið - 21.12.2010, Síða 22

Fréttablaðið - 21.12.2010, Síða 22
22 21. desember 2010 ÞRIÐJUDAGUR UPPI Á STÓL Bjúgnakrækir leiddi börnin inn í lagið Jólasveinar ganga um gólf, og þau tóku undir með miklum tilþrifum, eins og sjá má á myndinni. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA ÁNÆGÐUR MEÐ BJÚGUN Hugulsamt barn hafði bjúgu meðferðis á Þjóðminjasafnið og færði Bjúgnakræki, sem þangað var kom- inn til að heilsa upp á krakkana. Hann þáði lostætið með þökkum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA ENGLAR Í RÖÐUM Deilt hefur verið um hvort trúin eigi erindi í skólastarf en nemendur í Fossvogsskóla láta það sem vind um eyru þjóta og settu í gær á svið helgileik eins og tíðkast um jól. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA MARK! Krakkarnir búa sig undir jólin með ólíkum hætti. Þessir piltar tóku þátt í fótboltamóti á vegum Breiðabliks sem haldið var í Fífunni í Kópavogi. FRÉTTABLAÐIÐ / VILHELM JÓLIN Á ÍS Það var hátíðarstemning í Skautahöllinni í Laugardal í gær. Stóreflis jólatré hafði verið komið fyrir á ísnum og börnin löðuðust að því. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Börnin stytta stranga biðina eftir jólunum Það getur reynst ungviðinu óbærilegt að bíða eftir að jólin gangi loksins í garð. Gunnar V. Andrésson og Vilhelm Gunnarsson mynduðu krakkana þar sem þeir styttu sér stundir fram að hátíðinni. 3.999 Þú veist, spilið sem fær þig til að hugsa. Þú veist í bústaðnum, flugvélinni, stofunni, tjaldinu eða bíln um. · Aldur: 8+ · Leikmenn: 2-6 · Mínútur: 5-45

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.