Lífið - 01.09.1936, Blaðsíða 6
164
LÍFIÐ
veislur, dans og fleiri þarfleysur. Væri nauðsyn-
legt, að foreldrar athuguðu, hvort ekki væri hægt
að stilla meira í hóf og takmarka óhófslíf barna og
unglinga á öllum sviðum. En því aðeins getur eldra
fólkið þetta, að það sé sjálft siðfágað, víðsýnt og
kærleiksríkt. En á því er mikill misbrestur.
Forráðamönnum lýðsins ber skylda til að láta
sig varða m i k i ð allan hag einstaklinga þjóðfé-
laganna, andlegan og líkamlegan. Þetta eru nú
ýmsir forystumenn líka að reyna. En þeim verður
hörmulega lítið ágengt.
Forstöðumenn kvikmyndahúsanna þyrftu að sjá
sóma sinn og bera hag þjóðarinnar fyrir brjósti.
Hér er að ræða um tæki, sem getur aukið menn-
ingu eða ómenningu. Þess vegna ættu þeir e k k i
að sýna aðrar myndir en þær, sem fræddu og göfg-
uðu áhorfendur. Og um fram alt ætti að ala múg-
inn svo vel upp, að hann hefði vit og festu til að
a f þ a k k a lélegu myndirnar og ljótu. Stjómend-
ur bæja, borga og þorpa, ættu hiklaust að banna
nætursýningar, bæði í leikhúsum og kvikmynda-
húsum. Æskilegt væri að snúa öðru hvoru við
blaðinu og venja menn við að rísa árla úr rekkju.
Væri mjög heppilegt að láta sýningar hefjast kl. 6
að morgni. Ynnist við það meira en margan grun-
ar. Sýningar ættu aldrei að standa lengur yfir en
eina til hálfa aðra klukkustund. Er það meira en
nóg tímaeyðsla og kyrseta.Það þarf að leggja meiri
áherslu á siðferðisuppeldi þjóðar vorrar. Forráða-
menn hennar ættu að útvega fátæku stétt-
u n u m betri aðstöðu í lífsbaráttunni. Og sérhverj-