Lífið - 01.09.1936, Qupperneq 23
LÍFIÐ
181
þetta karlagrobb. En breyttar aðstæður til sjávar
og sveita valda því, að menn eru naumast eins
þolnir og ^þrautsegir og fyr, meðan baráttan við
náttúruöflin krafðist enn meiri átaka. Menn alast
nú upp undir áhrifum tækninnar. íþróttir og auk-
in andleg ment — líkamsrækt, sem er leikur í stað
púlsvinnu — löng kvöld til lærdóms í stað þræl-
dóms fram á nætur — hefir gert gagngerða breyt-
ingu á viðhorfi uppeldisins. En eins og tæknin, eða
vélamenningin öðru nafni, hefir, ásamt margfald-
ri skólamentun, ekki útrýmt styrjöldum út í heimi,
heldur jafnvel stutt að þeim, eins hefir siðgæðið
hér á landi ekki tekið framförum í hlutfalli við
þróun tækninnar. Þetta er kjarni málsins. í þessu
er fólgið úrlausnarefni uppeldisfræðinga vorra
framvegis.
Gamalt fólk, sem er kjarni íhalds og afturhalds,
hér á landi sem annars staðar heldur því fram, að
æska nútímans sé siðspiltari en það sjálft var, þeg-
ar það var ungt. Það man reiprennandi klausur úr
biblíunni eða Vídalíns postillu, en það er gleymið á
eigin æskubrek. En vér, sem lifum í andrúmslofti
æsku, en ekki elli, vitum, að siðgæðið, sem slíkt, er
engu lakara en fyrir 50—100 árum. Einungis að-
staeðumar eru gerbreyttar. Fleiri óskilgetin börn
nú þýða minni misbeiting kynhvatarinnar en áður
átti sér stað. Það eru fleiri hjónaskilnaðir — færri
stórhneykslanleg hjónabönd nú en fyr, og eru þó
slík hjónabönd nógu mörg enn. Það gifta sig fleiri
af ást nú, færri fyrir peninga en áður tíðkaðist.
Götusollur er margfalt meiri, enda eru bömin líka