Lífið - 01.09.1936, Page 30
188
LIFII>
sem sett hafa verið til verndar og öryggis almenn-
ingi, en sem sennilega eru brotin allra laga mest,
en það eru bifreiðalögin og tala eg þá um leið um
brot á almennum umferðareglum og lögreglusam-
þyktum.
Allir bæir á landinu og mörg kauptún hafa
sínar lögreglusamþyktir, þar sem tekin eru upp
ýms ákvæði um það, sem reynslan hefir sýnt, að
nauðsynlegt er að hafa sérstök ákvæði um.
f lögregiusamþykt Reykjavíkur er bannað að
hjóla eftir gangstéttunum, af því að slysahætta
getur stafað af reiðhjólunum og gangstéttirnar
eiga að vera einskonar friðarstaður fyrir gangandi
fólk, börn og bamavagna. Það mætti nú ætla, að
jafn sjálfsögðum fyrirmælum væri hlýtt, en svo er
þó ekki; hér í Reykjavík sér maður daglega meira
og minna af hjólreiðamönnum hjóla eftir gang-
stéttunum og meira að segja kemur það fyrir í
sjálfu Austurstræti, þar sem umferðin er þó einna
mest. Þá er hjólreiðamönnum eins og öðrum bann-
að að hanga aftan í bílum, en hér í Reykjavík fer
ekki svo vörubíll upp Hverfisgötu eða Vesturgötu
um matmálstíma, að ekki hangi aftan í honum
einn eða fleiri reiðhjólamenn og þetta er gert þrátt
fyrir það, þó dagblöðin flytji iðulega fréttir um
það, að maður hafi slasast á hjóli af því að hann
hékk aftan í bíl. Ef menn gerðu sér ljóst og legðu
niður fyrir sér þá slysahættu, sem yfir þeim vofir
í hvert sinn, sem þeir hanga aftan í bíl, yrði það
ábyggilega til þess að þessi ósiður legðist niður.
Enda þekkist slíkt athæfi hvergi nema hér á landi.