Lífið - 01.09.1936, Blaðsíða 33
LIFIÐ
191
síðan en í gær, að eg sá stúlku vera að berja gríð-
arstórt og rykugt teppi á svölum, sem sneru út að
einni af aðalgötunum í bænum, og rykið féll eins
og skriða yfir þá, sem um götuna gengu, en þeir
voru margir, því þetta var einmitt um kl. 13, þegar
fólk er að fara til vinnu sinnar.
Mér hefir oft dottið í hug, að eitt besta ráðið til
þess að laga þetta ásamt öðru fleiru væri það, að
ritstjórar og eigendur dagblaðanna tækju sig sam-
an um að prenta með feitu letri á áberandi stöðum
í blöðum sínum áminningar til almennings um það,
sem bannað er, t. d.: Hjólið ekki ljóslaust á ljósa-
tíma. Fylgið settum umferðareglum. Farið ekki
yfir götu án þess að aðgæta hvort hætta er á
ferðum. Akið ekki barnavögnum, þar sem umferð-
in er mest á götunum, akið þeim heldur eftir gang-
stéttunum. Hristið ekki gólfrykið yfir þá, sem um
göturnar ganga. Hangið ekki aftan í bílunum, það
getur kostað ykkur lífið. Látið ekki börn ykkar
vera á sleðum á götunum o. s. frv. En það væri
ekki nóg að taka svona áminningar upp nokkrum
sinnum, þær þyrftu að standa daglega og til skift-
is í blöðunum, þar til að árangur fengist.
Kem eg þá að bifreiðalögunum, sem eg gat um
áðan að brotin væru allra laga mest, og eru þó
þau lög og þær reglur, sem þeim fylgja, aðeins
verndunarlög fyrir hvern einn og einasta þegn rík-
isins.
I bifreiðalögunum er bannað að flytja fleiri far-
þega en ákveðið er í skoðunarvottorði hverrar
bifreiðar fyrir sig. Þetta ákvæði er sett með til-