Lífið - 01.09.1936, Side 35
LÍFIÐ
193
brjóti þetta ákvæði laganna og ætti þó engum að
vera ljósar en þeim, hvað mikil slysahætta er að
því, að svo. þröngt sé hjá ökumanni, að hann nái
ekki til að hemla sem sagt á sömu sekúndu og
hugur hans gefur honum til kynna nauðsynina á
því. Mörg slys hafa orðið af þessari ólöghlýðni.
Þá er það einnig bannað í þessum lögum að
þrengja að bifreiðarstjóra með bögglum og dóti, en
þetta ákvæði er samt sem áður mjög svo brotið. Þó
veit víst allur fjöldi fólks, að slíkt hefir orðið
mannsbani. Vil eg þar til nefna dauðaslys, sem
varð í Norðurlandi fyrir tveimur árum síðan, þeg-
ar keðja bifreiðarinnar, sem lá inn í stýrishúsinu,
hafði fallið niður í rauf þá í gólfinu, sem hand-
hemilsstöngin rennur eftir, svo ekki var hægt að
neyta handhemilsins þegar á þurfti að halda og
af þeirri ástæðu hvolfdi bifreiðinni og orsakaði um-
J'ætt slys.
Bifreiðalögin banna einnig að flytja fólk öðru
vísi en í byrgi, sem nánar í lögunum og reglugerð
bar um er tiltekið hvernig skuli vera. Þó sér mað-
ur næstum daglega, að fólk er flutt á vörubílum of-
an á allskonar skrani og meira að segja ofan á
háfermi, svo sem ofan á heyi, sem stöplað er langt
npp fyrir stýrishús bifreiðarinnar. í sumar þegar
bifreiðin með heyhlassinu lagðist á hliðina í Kömb-
um, voru 2 eða 3 farþegar ofan á heyinu. En að
ekki varð slys að í þetta sinn var af því, að um
bá hafði verið búið aftarlega í hlassinu, svo þeir
?átu rent sér niður um leið og þeir sáu hvað var
að gerast, og. ekki síður vegna þess, að á staðnum,
13