Lífið - 01.09.1936, Page 41

Lífið - 01.09.1936, Page 41
LIFJÐ 199 leyfi sér að neyta áfengis, meðan hann sé við vinnu sína. Brot á áfengislöggjöfinni, á afurðasölulögunum og fleiru verður ritað um síðar. Þau margskonar brot á lögum, sem eg hefi hér ritað um og sem, því miður, koma oft fyrir, hygg eg að stafi meira af hugsunarleysi fólks um það, hverjar afleiðingar það geti haft og af þekkingar- leysi þess á lögunum, heldur en af meðfæddri löng- un. til að brjóta lögin, að fræðsla og áminningar gætu mikið hjálpað í þessum efnum og dregið úr umferðaslysunum, sem allir játa að eru of mörg og of stór. Allir ættu að geta sameinast um að gera alt, sem í þeirra valdi stendur, til að minka slysahættuna og auka öryggi vegfarandans. Málvöndun. Anda sætta bögur best, bjartir hættir lifa. Vanda ætti málið mest, mjúka þætti skrifa. Á. E. Yfír engu að kvarta. Engu kvarta yfir ber, Andinn skartar fagur, meðan hjartað í mér er, eins og bjartur dagur! Á. E.

x

Lífið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lífið
https://timarit.is/publication/674

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.