Lífið - 01.09.1936, Page 61

Lífið - 01.09.1936, Page 61
LIFIÐ 219 gengu á undan öðrum í því að læra reykingar, og þótti það þá fínt er slíkir höfðingar og glæsimenni höfðu það fyrir öðrum. Kannast flestir við söguna af Raleigh, þegar þjónn hans sá hann reykja i fyrsta sinn. Hélt þjónninn að kviknað væri í hús- bónda sínum og sótti í dauðans ofboði fulla fötu af vatni og steypti yfir höfuðið á honum til þess að slökkva eldinn. Vegna þess, að þessir glæsilegu höfðingjar gengu á undan, breiddist tóbaksnautn óðfluga út á Englandi. Þá var því haldið þar fram, að tóbak hefði svo mikinn lækningakraft, að það væri meðal við næstum því öllum hugsanlegum sjúkdómum. Augu manna opnuðust þó fljótlega fyrir þeirri staðreynd, að hér var um hættulegt eitur að ræða. ■ Þeir, er stjórnuðu löndunum, óttuðust afleiðing- arnar. Öflug barátta var þá hafin um víða veröld gegn hinum nýja sið. Tóbaksnautn var víða bönn- uð, og lagðar við hinar grimdarlegustu refsingar. í Tyrklandi var t. d. venja að reka pípuna í gegn um nasir tóbaksmanns, sem uppvís hafði orðið. I Rússlandi var néfið skorið af tóbaksmanninum. Yrði hann uppvís að tóbaksnautn í annað sinn, var hann tekinn af lífi. Katólska kirkjan ógnaði mönn- um með bannfæringu, ef þeir neyttu tóbaks. James hinn fyrsti Englandskonungur lýsti tóbaksnautn- inni með eftirfarandi orðum: „Tóbak er viðbjóðs- legt fyrir augun, hatramlegt fyrir nasirnar, skað- vænlegt heilanum og voðinn sjálfur fyrir lungun, og hinn svarti stæki mökkur þess gengur næst hin- um helvíska reyk frá hinu botnlausa díki glötunar-

x

Lífið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lífið
https://timarit.is/publication/674

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.