Lífið - 01.09.1936, Page 63
LIFI.Ð
221
úr einum vindli er nóg eitur til þess að drepa mann,
komist það í blóð hans í einum skamti.
Vísindamaður einn í Rússlandi tók nokkrar kan-
ínur og bjó svo um, að inni hjá þeim var loftið
sífelt blandað sígarettureyk. Að öðru leyti var vel
séð fyrir þörfum þeirra.
Sumar af kanínunum dóu, áður en mánuður var
liðinn, hinar, sem lifðu af, sýndust venjast reykn-
um, svo að þær sakaði ekki. Þær voru orðnar að
tóbakskanínum. En eftir fimm mánuði voru þær
teknar af lífi og rannsakaðar; þá kom það í ljós, að
þær voru allar sjúkar af eituráhrifum; hver ein-
asta þeirra var hjartabiluð og með sýktar æðar.
Franskir vísindamenn gerðu fyrir nokkrum árum
rannsókn á tóbaksáhrifum á dýr. Þegar hundur var
látinn anda að sér tóbaksreyk, þá minkaði blóð-
þrýstingin snögglega, en óx síðan hröðum skrefum.
Það var vegna þess, að æðarnar drógust saman
við eituráhrifin, svo að hjartað varð að vinna marg-
falt erfiði, til þess að þrýsta blóðinu út um líkam-
ann. Sama var að segja um æðarnar í heilanum,
og einnig um nýrnagangana, þeir drógust saman,
svo að nýrun gátu ekki unnið á réttan hátt.
Svipuð þessu eru áhrif tóbaks á mennina.
Miklir tóbaksmenn eru oft mæðnir og fá hjart-
slátt við áreynslu, og margir tóbaksmenn deyja af
hjartabilun og nýrnasjúkdómum. Mark Twain
hafði tóbakshjarta, sem kallað er, það varð hans
banamein. Læknum kom saman um, að Mc Kinley
Bandaríkjaforseti, sem var myrtur 1901, hefði lif-