Lífið - 01.09.1936, Síða 64
222
LIFIÐ
að af sárið, sem hann fékk, ef blóð hans hefði ekki
verið skemt af tóbakseitri.
Áhrif á vöðva og taugar.
Þá eru áhrif tóbaks á kraftana viðurkend. —
Prófessor Lombard við háskólann.í Michigan gerði
tilraunir á sjálfum sér. Hann mældi vöðvaafl sitt
með venjulegum kraftmæli og fann, að þá dag-
ana, sem hann reykti fimm sterka vindla, var
vöðvaafl hans 41 % minna en þegar hann var laus
við eituráhrif.
Þetta vita aflrauna- og íþróttamenn. Þeir varast
tóbak eins og heitan eld, þegar þeir búa sig undir
sýningar eða kappraunir.
Það er ekki aðeins, að nikótín dragi mjög úr
vöðvaaflinu, heldur lamar það og taugakerfið, svo
að stjórnin á vöðvunum verður óstyrk. Menn hafa
ef til vill veitt því eftirtekt, að þeir, sem reykja
mikið af sígarettum, eru vanalega skjálfhentir.
Gott dæmi, þessu til sönnunar, er atburður, sem
vildi til í Kaliforníu fyrir nokkrum árum hjá
Luther Burbank.
Burbank var, eins og menn vita, nokkurs konar
Edison á sviði jurtafræði og garðyrkju. Hann hefir
svo að segja skapað nýjar jurtir og gefið heimin-
um, bæði til skrauts og fæðu.
Jurtakynbætur hans voru eitthvert mesta vanda-
verk og heimtuðu ekki minni nákvæmni en úr-
smíði og önnur fíngerðustu störf. Hann segir sjálf-
ur svo frá: ,,Eg hefi um tuttugu menn í þjónustu
minni, til þess að hjálpa mér við hin vandasömu