Lífið - 01.09.1936, Qupperneq 65
LIFIÐ
223
störf mín. Hvert sinn, sem eg sé að einhver þessara
manna er ekki vaxinn þeim vanda, sem verkið út-
heimtir, læt eg hann fara úr þjónustu minni. Fyrir
nokkru spurði ráðsmaður minn, hvort eg kynti
mér lífsvenjur starfsmanna minna. Og þegar eg
neitaði því, þá sagði hann, mér til mikillar undr-
unar, að hver einn og einasti þessara manna, sem
eg vísaði úr vistinni, neytti vínanda og tóbaks.
Þessir menn, sem voru vel færir um að vinna
vanalega garðvinnu, kölluðu vandasömu störfin
mín nostur og urðu að gefast upp við þau, vegna
þess, að þeir höfðu enga getu til þess að einbeita
taugaorku sinni. Eg get alls ekki treyst tóbaks-
manni, til þess að vinna sum af þessum hárná-
kvæmu störfum, jafnvel þótt hann reyki ekki nema
einn vindil á dag“.
Þannig farast orð hinum mikla vitringi á sviði
jurtafræðinnar.
En það eru fleiri en hann, sem vita, hver áhrif
tóbak hefir á getu manna og afrek öll.
Þess vegna hafa yfir 40 stórfyrirtæki í Massa-
chusetts tekið sig saman um það, að ráða aldrei til
sin pilt innan 18 ára, ef hann reykir. 69 verslunar-
hús í Detroit hafa tekið upp sömu reglu. Og mörg
stærstu fyrirtækin í Chicago hafa útrýmt tóbaks-
nautn meðal starfsmanna sinna.
Þennan sið ætti að taka upp víðar. Það væri
góð bending fyrir unga menn, sem ekki stendur á
sama um framtíð sína, en vilja brjóta sér leið til
þroska, fjár og frama.