Lífið - 01.09.1936, Page 67
LiIFIÐ
225
mikið eldri, voru þeir þó einum þriðja þumlungs
iægri en hinir til jafnaðar og höfðu minna lungna-
þol.
500 drengir í einkaskólum voru rannsakaðir.
Nákvæm mæling sýndi, að þeir sem reyktu, voru
12—15% á eftir hinum að námsþroska.
Önnur rannsókn fór fram í 16 skólum víðsvegar
um Bandaríkin. Voru í þessum skólum 800 dreng-
ir. Þar reyndust tóbaksmenn 17—28% síðri en
þeir, sem lausir voru við tóbakseitrun.
Samanburður á 50 reykingamönnum og 50
lausum við tóbak, fór fram í landbúnaðarháskól-
■anum í Kansas. Þessir menn voru valdir af handa-
hófi. Rannsóknin leiddi í ljós, að tóbaksmenn voru
28% á eftir hinum og í flokki þeirra tóbaksmann-
anna voru 74% allra þeirra, sem fallið höfðu í
ÍTegn við skólann.
Þetta, sem hér hefir verið tilfært, ásamt fjöl-
mörgu öðru, sýnir það, að hver nemandi þarf á
skýrri hugsun að halda og ósljófgaðri af eiturá-
hrifum, sé honum ant um velferð sína, og vilji hann
ekki verða eftirbátur annara.
Tóbak hindrar vöxt.
Margt bendir til þess, að sú starfsemi frum-
■anna, sem veldur vexti og þroska ungviðis, sé frá-
brugðin frumustarfsemi hins fullorðna. Við ýmsar
tilraunir á ungum dýrum hefir það sýnt sig, að tó-
bak hefir stórum verri áhrif á selluskiftingu og
vaxtarstarfsemi ungviðis en á viðhaldsstarfsemi
binna fullvöxnu.
lB