Lífið - 01.09.1936, Blaðsíða 68
226
LIFIÐ
Það er t. d. hægt að fóðra ungviði þannig, að það
haldi áfram að lifa, án þess að vaxa.
Þannig voru tveir naggrísir (Guinea pigs) tekn-
ir fjögurra daga gamlir og neyddir til að anda að
sér tóbaksreyk. Á 44. degi vógu þessi litlu dýr,
annað 174 grömm, en hitt 169 grömm, en hefðu
þá átt að vega 330 grömm hvort, til þess að ná
meðalþyngd jafnaldra sinna. Annað dýrið dó 44
daga gamalt, en hitt lifði og var látið halda áfram
eiturönduninni. Við lok þriðja mánaðarins vóg dýr-
ið 295 grömm, en meðalvigt jafnaldra þess var þá
485 grömm. Svo mikið hafði eitrið kipt úr því
vexti, þótt það hefði ekki orðið því að bana.
Vel er það vitað, að sígarettan hindrar vöxt og
þroska og er því erkióvinur allrar æsku. Sýnir það
sig í löggjöf þeirri, sem ,bannar að selja börnum
tóbaksvörur, meðan þau hafa ekki náð ákveðnu
aldurstakmarki. Þetta hefir't. d. lengi verið bæjar-
samþykt hér í Reykjavík. Var það að sönnu papp-
írsgagn eingöngu um langan aldur, en hefir nú
verið tekið upp aftur af barnaverndarráði. Og má
nú ekki selja neinum tóbaksvörur innan 14 ára ald-
urs. Samskonar eða svipaðar ráðstafanir gilda í
fjölmörgum menningarlöndum.
Ráðandi menn í Japan urðu hugsjúkir út af því,
hve margir borgarar landsins voru litlir vexti. Þá
voru tilraunir gerðar, til þess að rannsaka áhrif
tóbaks á þroska ungviðis. Að því loknu var frum-
varp til laga borið upp í þinginu þess efnis, að öll
tóbaksnautn skyldi bönnuð hverjum borgara, karli