Lífið - 01.09.1936, Blaðsíða 70
228
LIFIÐ
Það fé, sem Islendingar, með sínar 100 miljóna
skuldir á baki, verja nú til þess að kaupa tóbak
fyrir, var á síðastliðnu ári yfir hálfa fjórðu miljón
króna, eða yfir 300,000 kr. meira en verð alls
áfengis, sem íslendingar keyptu á s. 1. ári.
Ef allir, ungir menn og gamlir, karlar og konur,
neyttu jafn mikils, þá væri það á ári nálega eitt
kílógram á mann. Er það meira en í Noregi og
Finnlandi, en minna en í Bandaríkjunum, Hollandi
og Belgíu. í þessum löndum eru notuð árlega 3 kg.
á mann.
Auðkýfingar þar í löndum eiga tóbaksekrur og
gera allskonar gyllingar, til þess að auka söluna,
með auglýsingum og fleiri ráðum.
Þetta ár, sem nú er að líða, er áætlað að íbúar
landsins snari út hátt á fjórðu miljón fyrir tóbak.
Nokkuð af því fer að sönnu til þeirra landsbúa, sem
vel eru að því komnir, og ættu vel fyrir því að
hljóta svo ríflegan skamt, að þeir þyrftu ekki á
fleiri að halda. Á eg þar ekki við andstæðinga
mína í trúmálum, stjómmálum, eða nokkrum öðr-
um málum — mér er vel við þá alla —, heldur eru
það kláðamaurarnir. Þeir fá 12—14 þúsund króna
virði af tóbaki árlega. Og mun það vera eina tó-
bakið, sem gagn verður að á fslandi. Hefir tóbak
reynst best allra eiturlyfja til sauðfjárbaða. Og
má marka hollustuna nokkuð af því. Hitt, sem
mannkindunum er ætlað að neyta, nemur mikið
yfir hálfa fjórðu miljón króna, þótt dregið sé frá
alt það, sem sauðkindunum er ætlað.
Auðvitað fer ekki alt þetta fé út úr landinu. Rík-