Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.09.1952, Síða 12

Sameiningin - 01.09.1952, Síða 12
58 Sameiningin lægara oss í tímanum en hið Nýja og svo einnig hitt, að hinn hellenski heimur, sem Nýja testamentið er að nokkru sprottið úr, stendur oss nær menningarlega en hinn he- breski. En samt gildir að mxklu leyti sama máli um Nýja testamentið, þar sem það og trú þess er byggt á opinberun Guðs meðal Gyðingaþjóðarinnar. Margar trúarhugmyndir, sem liggja til grundvallar kristinni trú, eru nútímamannin- um lítt skiljanlegar eins og til dæmis Messíasarhugmyndin og kenningin um friðþægingu. Gamla testamentið, sem er umræðuefni vort að þessu sinni, hefir verið kannað meir en nokkurt annað safn rita. Að þeirri könnun hefir verið unnið um nokkurra alda skeið, en árangurinn samt að heita má mestallur unnizt síðast- liðin hundrað árin. Þrátt fyrir þetta er samt margt enn í óvissu viðvíkjandi sögu og trúarbrögðum hebreanna, og vinna sérfræðingar stöðuglega að lausn ýmissa vandamála. Hér er um að ræða ýmisleg smáatriði, sem leikmanninum þykir ekki ævinlega skemmtileg eða girnileg til fróðleiks. Én samt er þýðmg þeirra mikil þegar saman eru sett og þau mynda heildarmynd eða gera ljósari mynd, sem áður hefir ekki verið með öllu skýr. Hér verður þá einnig rætt um slíkar rannsóknir, sem gerðar hafa verið, en virðast ef til vill ekki faílnar til að veita mönnum andlega ánægju. Þær snerta heldur ekki trú vora né trúarlega afstöðu til R.itningarinnar. En að mínum dómi veita þær nokkra inn- sýn inn í heim, sem fáir gefa sér tíma til að kynnast. Fornleifafræðin verður að teljast vera ný vísindagrein. Enda þótt menn hafi grafið í jörðu sér til fróðleiks öldum saman, er það ekki fyrr en á síðustu áratugum, að hún hefir veitt mönnum þau kynstur fróðleiks um liðna tíma og háttu manna iyrr á öldum, sem nútíma vísindaaðferðir hafa getið af sér. Fornleifafræðin er einnig í hugum manna oftast tengd greftri í jörðu, þegar grafið er eít±r rústum borga og mannvirkja og leitað að leifum horfinna menn- ingartímabila. En hún nær einnig yfir annað svið: handrita- rannsóknir. Það er og rétt, að „handrit“ fmnast stundum, þegar grafið er í rústir, en tíðara mun það, að „handritin“ séu leirflögur eða steinar, sem letrað er á. Einn hinn merk- asti fundur síðari ára, er hneig í þessa átt, gerðist suður á Sýrlandi, er franskir fornleifafræðingar fundu heilt „bóka- safn“ áletrana frá því um 1200—1400 f. Kr. Þetta gerðisl

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.