Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.09.1952, Qupperneq 19

Sameiningin - 01.09.1952, Qupperneq 19
Sameiningin 65 margs að minnast frá liðinni tíð, og ég hefi margs að minn- ast frá þessum stað hér á Grund. í kirkju og kristilegu starfi hefir kirkjan hér í rúm 60 ár leikið stóran þátt í andlegu starfi byggðarinnar. Fyrsta minning sem ég á í sambandi við þessa kirkju var þegar ég var fermdur 1897, og' hefir mér æfinlega síðan þótt vænt um þessa höfuð- kirkju byggðarinnar, kirkju Frelsissafnaðar, og það lifa enn í hjarta mínu nokkrir neistar frá þeirri tíð. Oft hefir byggðin sameinast á þessum stað, þegar eitthvað þýðingar- mikið hefir verið á ferðinni, og þar á ég og allur þorri hins eldra fólks og margir ungir líka, margar helgar endurminn- ingar frá þeim samfundum. Hér átti séra Hafsteinn Péturs- son, fyrsti prestur í Argyle, sem hér átti heimilisfang, heima í litlu húsi hérna suður á balanum, þar bjó hann einn. Séra Jón Bjarnason og hann voru þeir fyrstu sem boðuðu kristindóminn fólki í Argyle og lögðu grundvöllinn að kirkju og kristilegu starfi, sem hefir svo mjög auðgað fólkið í byggðinni að andlegum verðmætum og flutt blessun í skaut þessarar fögru sveitar. Ég get ekki hugsað mér farsælli sveit eða betra og þakk- látara fólk heldur en einmitt hér í Argyle, og minsta kosti að nokkru má þakka það kirkju og kristilegu starfi innan byggðarinnar, hér hefir aldrei verið sundrung. Ég man vel eftir því þegar fregnin kom, að séra Hafsteinn væri búinn að segja upp starfi og væri að flytja til Winnipeg; og hér var hann kvaddur af sameiginlegum hóp úr öllum pörtum byggðarinnar. Hér var séra Jóni J. Clemens fagnað og hann kvaddur. Þá munum við öll er séra Friðrik Hallgrímssyni var fagnað 1903 og svo kvaddur 1925. Séra K. K. Ólafsson var fagnað í Glenboro, en hér var hann virkilega kvaddur 1930. Séra Agli Fáfnis var fagnað af prestakallinu 1930 og kvaddur héi á Grund 1945. En 1947 var séra Eric H. Sigmar fagnað og kvaddur hér 1951, og allir þessir prestar hafa lagt stein í vegg hins helga musteris, og á margvíslegan hátt auðgað líf fólks í byggðinni. Byggðin hefir verið prestslaus í ár og nú eftir langt stríð erum við búin að fá prest, og erum við hingað komin til að fagna honum og bjóða hann velkominn tii safnaðanna og starfsins. Séra Jóhann Fredriksson hefir nú verið settur inn í embættið á formlegan hátt af hinum nýkosna forseta kirkjufélagsins, séra Valdimar J. Eylands.

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.