Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.09.1952, Blaðsíða 20

Sameiningin - 01.09.1952, Blaðsíða 20
66 SAI.ÍEININGIN Séra Jóhann Fredriksson, við bjóðum þig hjartanlega velkominn í bygg'ðina og starfið ásamt konu þmni og börnum. Ég býð ykkur velkomin í nafni prestakallsins og safnaðanna sameiginlega. Ég býð þig velkominn í sæti prestanna, sem hér hafa þjónað. Ég veit að fólkið hér mun taka saman höndum við þig og gefa þér allan mögulegan styrk í starfxnu. Við biðjum þér heilla og hamingju. Megi Guð láta sól sína skína á starf þitt og byggðina, í trú, von og kærleika um langan ókomin aldur, eins og hann hefir gjört allt frá landnámstíð. En til þess að hljóta blessun þurfum við öll að vera Guði og sjálfum okkur trú. „Ef Guð ekki byggir húsið erfiða smiðirnir til ónýtis,“ segir í Davíðssálmum, ef ég man rétt. G. J. Oleson Enn um skírnina Grein um ungbarnsskírn, er sýnir tvö töluvert andstæð samtöl þar um, kom mér til að hugsa um þetta mál að nýju þó í rauninni sé málið altaf í huga mínum, máske oftar en ekki undir hrúgu af einu og öðru hversdagssafni. Af hverju gæti það verið rangt að skíra ungbarn? Þeir sem eru andstæðir ungbarnsskírn, hafa aðeins eina mótbáru, ef mótbáru skyldi kalla, sem gæti komið til greina. Barnið á þess engan kost sjálft, að velja eða hafna skírninni. Þetta eru þó næsta veikur liður. Hefir nokkur heyrt þess getið, að velunnarar ungabarns afþakki gjafir verald- legra kenda, peninga eða önnur verðmæti, barninu löglega gefm en geymd þar til barnið er lögaldra? Það munu fáir hafa heyrt. Hvernig myndi fara ef beðið væri með þvott og aðra hirðu svo sem föt og fæði þar til barnið sjálft gæti sagt til um það, sem það vildi fá í þessu efni? Á hverju byggisi skírnin? Á trúnni á náðarsamlega nálægð almáttugs og kærleiks- riks Guðs, sem vér trúum að barnið verði aðnjótandi, ef vér hinir fullorðnu færum Guði barnið á þennan hátt.

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.