Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.03.1953, Side 9

Sameiningin - 01.03.1953, Side 9
Sameiningin 7 orð og sagt: Guð er hin fullkomna uppspretta allra andlegra gæða, og sonurinn, Jesús Kristur, flytur hana til mannanna; en ég vil biðja yður að veita eftirtekt hinni óviðjafnanlegu lýsingu á þessari uppsprettu, þessu lífi: Það líf er „ljós mannanna.“ Þar er ekki einungis máttur, heldur er þar einnig guðdómleg fegurð, himneskur kærleikur, frelsandi náð. Sérhverjum manni, sem þetta líf meðtekur, verður það veg- vísir til nytsams lífernis. Kirkja Krists á jörðinni flytur boðskapinn um þetta líf út um öll lönd heimsins, og' vill láta öll mannanna börn eignast þetta óviðjafnanlega ljós. Hún vinnur verk sitt með prédikun orðsins, heilögum sakramentum og með leiðsögn undir áhrifum Heilags anda. Nokkur hluti þess starfs sendur í sambandi við kirkjuárshátíðir og sérstök tímabil, sem hafa vekjandi áhrif. Þar vil ég fyrst nefna langaföstu og með henni hina óviðjafnanlegu Passíusálma Hallgríms Péturssonar. Tilgang- ur beggja er sá að leiða menn að krossi Jesú Krists, þar sem framkvæmt var hið fegursta og guðdómlegasta verk, sem nokkurn tíma hefir verið unnið á jörðunni: Það að fórna lífi sínu mönnunum til eilífrar sáluhjálpar. Hver einasti maður, sem þiggur þá gjöf getur í sannleika sagt: „Þíns hjartadreyra heilög lind, hreinsar mig vel af allri synd.“ Sannarlega vill hann öllum vera vegurinn, sannleikur- inn og lífið. Bæði orð hans og eðli sýna leiðina að öllu hinu guðdómlega; hann ekki einungis flutti mál sannleikans, heldur einnig var alt hans líf hreint og satt; hann leiðir oss að uppsprettu lífsins í Guði. „Hjartans instu æðar mínar elski, lofi, prísi þig.“ Og svo kemur sigurinn á páskunum. Að vísu var sigur- inn í raun og veru unninn á krossinum, en hann varð mann- kyninu augljós á páskunum. Sannarlega er líf hans ljós mannanna. „Drottinn Jesú, líf og Ijós oss þín blessuð elska veitir; öllu stríði loks þú breytir sælurikt í sigurhrós.“

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.