Sameiningin - 01.03.1953, Blaðsíða 19
Sameiningin
17
þeirrar kynslóðar, sem nú ber uppi starf kirkjunnar, og hið
íslenzka prédikunarstarf sé nú að mestu miðað við smekk
og þarfir miðaldra og eldra fólks, er ekki þar með sagt, að
guðrækni kirkjunnar hafi vísað íslenzkri þjóðrækni á dyr.
Því fer mjög fjarri. Það sem skeð hefir er það, að þjóðrækn-
in hefir tekið á sig nýja mynd, hefir færzt yfir á víðtækara
svið. „Röddin er rödd Jakobs, en hendurnar eru hendur
Esaú.“ Þótt rödd kirkjulýðsins á meðal vor sé að verða æ
enskari, eru hendurnar (tilfinningin) enn íslenzkar. Það er
margsannað af ótal dæmum að yngra fólkið í söfnuðum
kirkjufélagsins, og það jafnvel þeir á meðal þess, sem ekki
eru af íslenzkum ættum, láta sér mjög umhugað um alt,
sem varðar sóma íslands og niðja þess hér vestra. Það ætti
því að vera augljóst mál, að ef mönnum er á annað borð
alvara með að vilja efla íslenzka þjóðernismeðvitund og
samheldni fólks vors hér vestra, þá ættu þeir að styðja mál-
stað kirkjunnar með ráðum og dáð. Hún hefir lifað lengst, og
vafalaust á hún sér lengsta framtíð allra samtaka, sem
menn hafa myndað með sér hér á vesturvegum.
Hið 69. ársþing kirkjufélagsins, sem haldið verður í
næstkomandi júnímánuði verður vissulega sögulegt. Það
verður fyrsta kirkjuþingið, sem haldið verður utan þeirra
landfræðilegu vébanda, sem áður var vikið að. Það verður
haldið í kirkju Hallgrímssafnaðar í Seattle, Wash., og sam-
komur í sambandi við það verða einnig haldnar í Blaine og
í Vancouver, B.C. Aldrei hafa svo fáir farið svo langt til
að halda kirkju þing. En það þurfa ekki, og mega ekki vera
fáir, sem fara. Söfnuðirnir á ströndinni hafa sýnt mikið á-
ræði og velvild með því að bjóða kirkjufélaginu vestur til
þinghalds. Vér, hér eystra, ættum að vera fúsir til að taka
boði þeirra, enda þótt það kosti meiri tíma og fé en venju-
lega. Tvennskonar ávinningur er ferðinni samfara: Vér
eflum bróðurböndin og styrkjum félagsheildina með vestur-
förinni, — og til þess ber einnig nauðsyn, og auk þess veitist
oss tækifæri óvenjulega skemmtilegs ferðalags. Ráðgert er
að leggja af stað með sérstakri C. P. R. járnbrautarlest á
sunnudaginn 21. júní; komið verður til Vancouver á þriðju-
dag, 23. júní, og þaðan farið með gufuskipi um Victoria, B.C.,
áleiðis til Seattle, en þar hefst kirkjuþingið á miðvikudags-
kvöld, 24. júní, kl. 7.30. Ef nógu margir gefa sig fram til
ferðarinnar í tæka tíð, fyrir 22. maí, gefst fólki færi á að
ferðast út af fyrir sig í sérstökum vagni, og fær auk þess