Sameiningin - 01.03.1953, Blaðsíða 21
Sameiningin
19
stórt framfaraspor fyrir bæ og byggð, og ber vott um djörf-
ung og kærleika fólksins til kirkjunnar. Guðsþjónustur
safnaðarins eru mjög vel sóttar, og nú á föstunni hafa sér-
stakar bænasamkomur verið haldnar síðdegis í kirkjunni,
við góða aðsókn. Prestur Gimli prestakalls, séra Harold
Sigmar, veitir norðurhluta Nýja-Islands einnig nokkra
þjónustu í prestsleysi þeirra þar, þannig messar hann fyrsta
sunnudag hvers mánaðar í Riverton.
☆ ☆ ☆ ☆
Söfnuðurinn að „Brú“ í Argyle hefir í fjögur ár sam-
fleytt goldið trúboðs tillag sitt (the Missions Apportionment)
að fullu. Er hér vel að verið, og er vissulega athyglis- og
eftirbreytnisvert fyrir aðra söfnuði kirkjufélagsins.
☆ ☆ ☆ ☆
Safnaðarstarfið á Kyrrahafsströndinni virðist vera í
blóma, eftir fréttum að dæma, sem þaðan hafa boiist. I
Blaine er stöðugt vaxandi aðsókn bæði að guðsþjónustum
og sunnudagaskóla. Söfnuðurinn er nú að hefja viðgerð bæði
á kirkjunni og samkomuhúsi safnaðarins, og kaup prestsins
var hækkað á síðasta ársfundi. Nýtt ungmennafélag er
myndað í Vancouver í sambandi við söfnuðinn þar, og að-
sókn að guðsþjónustum er góð og fer stöðugt vaxandi. Ung-
mennakór er nýmyndaður við Hallgrímskirkju í Seattle, og
syngur hann við guðsþjónustur kirkjunnar vissa sunnudaga.
Meðaltal kirkjugesta er hærra en nokkru sinni fyrr, og fjár-
mál safnaðarins í bezta lagi, þrátt fyrir mikinn aukakostnað
á árinu í sambandi við aðgerð á kirkjunni. Þessi söfnuður
hefir einnig borgað trúboðs tillag sitt að fullu. Presturinn,
séra Eric Sigmar, gerir ráð fyrir að fara, ásamt frú sinni
áleiðis til íslands, strax eftir kirkjuþing. Býst hann við að
dvelja þar árlangt við nám, og heimsækir ef til vill einnig
háskóla á meginlandinu. Er þetta er ritað, er það ekki að
fullu ráðið, hver tekur við embætti hans í Seattle, en hann
hverfur þangað aftur að lokinni ársdvöl sinni í Evrópu.
Háskóli íslands í Reykjavík sér þeim hjónum fyrir húsnæði
á meðan á dvöl þeirra stendur þar í landi, og veitir prest-
inum einnig nokkurn námsstyrk.
☆ ☆ ☆ ☆
Tveir söfnuðir kirkjufélagsins munu minnast 75 ára af-
mælis síns á þessu ári. Eru það Mikleyjar söfnuður og Fyrsti
lúterski söfnuður í Winnipeg. Mikleyjar söfnuður er talinn
76 ára, en minningarguðsþjónustan fórst fyrir árið sem leið