Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.03.1953, Page 10

Sameiningin - 01.03.1953, Page 10
8 Sameiningin Vígslulýsing Eftir séra JÓN BJARNASON, D.D. 12. sunnud. eftir Trinitais (27. ágúst) 1871 Náð sé með yður og friður frá guði vorum föður fyrir drottin vorn Jesúm Kristl „Ég sé himnana opna.“ — Guðsmaðurinn Stefán stóð frammi fyrir ráði Gyðinganna; þeir voru þá reiðubúnir að út ausa yfir hann öllu því hatri og heipt, er gagntekið hafði hjörtu þeirra. Þá segir ritningin, að hann , fullur af heilögum anda, hafi horft til himins, litið guðs dýrð og Jesúm standa við guðs hægri hönd, og þá hafi þessi friðsælu orð heyrzt af af munni hans: „Ég sé himnana opna og mannins son standa til hægri handar guði.“ Það var kraptur guðs heilaga anda, sem hreif huga hans upp úr ofsókninni, er þá var að líða yfir hann; það var heilög trúarsjón, er nam sálu hans burtu af þeim eymdarstöðvum, er illska Gyðinga reyndi til að gjöra honum óþolandi; það var ímynd hins kvalda og kross- festa kennara hans og endurlausnara, sem í andaslitrunum gjörði hann svo öruggan og hugprúðan, að hann ekki einungis gat svo rólega, eins og hann gjörði, falið sinn anda í hendur drottins Jesú, í því svefn dauðans var að síga á hann, heldur einnig, að dæmi síns blessaða lausnara, bað þeim svo inni- lega guðs fyrirgefningar, sem kvöldu hann svo sárlega til dauða. — Ó, hver getur hafið sig svo hátt upp úr sinni dýpstu niðurlæging og eymd? Hver getur skinið svo skært, þegar öll heimsins huggunar-ljós eru slokknuð og maðurinn er orðinn einstæðingur mitt í náttmyrkrum syndanna? Hver getur lifað svo fögru lífi mitt í dauðanum? Hver, nema sá, sem, eins og Stefán, fær að sjá himnana opna og morgunroða eilífðarinnar bregða fyrir í sálu sinni? Það er að vísu að miklu leyti hulið fyrir oss mönnunum, hvernig heimurinn hefði verið, ef syndin hefði ekki gjört hann eins og hann er; en vér höfum bæði reynsluna og eins orð heilagrar ritningar fyrir oss í því, að því lengra sem þjóðirnar hafa villzt frá þekking hins sanna guðs og þar með einnig frá góðum siðum, því dýpra hafa þær einnig sokkið í allskonar andlega eymd, því úrræðalausari hafa þær verið í eymd sinni, því færri uppsprettur sannrar sælu hafa verið að finna á villistígum þeirra þeim til svölurnar og

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.