Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.03.1953, Page 11

Sameiningin - 01.03.1953, Page 11
Sameiningin 9 hressingar. Þær sjá ekki dýrð drottins og hinn dásamlega fögnuð, sem hún færir hjörtum mannanna, af því að þær leita yndis á vegum dauða og syndar, þar sem drottinn er ekki að finna. Hið heilaga hlýtur að vera frá skilið hinu vanheilaga; syndin og dauðinn hlýtur að ríkja innan vé- banda myrkranna, og fjársjóðir huggunarinnar hljóta að vera lokaðir fyrir hinni föllnu kynslóð, meðan drottinn reisir hana ekki sjálfur við, lætur himnana opnast fyrir augum hennar og sýnir henni mannsins son, þann, er burtu ber heimsins synd, standa til hægri handar guði, endurlausnar- ann Jesúm Krist, hinn almáttka konung náðarinnar, ljóssins, lífsins og sannleikans. — Sú dýrðlega stund átti að upprenna þjóð Gyðinga, að fortjald musterisins rifnaði í sundur og sérhver maður fengi héðan úr þessu stundarheimkynni að líta inn í leyndardóm hins allra helgasta. Við krossdauða Jesú Krists var tíminn kominn, þá er hin himneska huggun hjartnanna, er allt þangað til hafði verið hulin öllum þorra manna, allt í einu varð aðgengileg hverju mannsbarni, og það eigi einungis meðal Gyðinga, guðs útvöldu þjóðar, heldur og einnig meðal hinna frá villtu heiðingja víðsvegar um allar álfur heimsins; og vér getum með sanni sagt, að þá hafi himnarnir opnazt yfir höfðum mannanna og sól eilífrar huggunar og friðar upp runnið öllum Jesú nafns játendum, sem viljað hafa opna augu sín og hefja þau til himna. „Ég sé himnana opna.“ — Það var hin fyrsta trúarhetja kristninnar, sem þannig talaði á sinni dauðastundu; það var hinn fyrsti píslarvottur kristilegrar kirkju, sem með þessi orð á vörum gekk gegn um grjóthríðina frá hinum óðu of- sóknarmönnum sínum út í grimman og kvalafullan dauða. Ó, hve dýrðlegt og háleitt er upphaf sögu kristilegrar kirkju hér í tímanum! en þá líka, hve vegsamlegt er áframhald hennar allt fram að þessum degi! Það voru forlög hins litla, en þó blómlega, lærisveinahóps drottins Jesú Krists, að eiga sífellt að sæta ofsóknum og aðkasti af hinum ólmu óvinum kristindómsins; og fyrir mörgum þeirra átti það einnig að liggja, að krýna hið baráttufulla æviskeið sitt með bitrum kvölum á sinni dauðastundu. En allt um það ljómaði ljós trúarinnar svo skært í sálum þeirra, og hinn andlegi friður hins himneska andlega leiðtoga þeirra svalaði svo sætlega hinum særðu hjörtum, að mitt í angistinni, þrautunum og þrengingunum fannst þeim nærri því optlega, að þeir lifðu

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.