Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.03.1953, Qupperneq 16

Sameiningin - 01.03.1953, Qupperneq 16
14 Sameiningin sóttu að honum. Og ekki voru það aðeins hinar yfirstignu freistingar, sem risu þá upp aftur; einnig hinar, sem hann ekki hafði sigrazt á, með óendanlega víðtækum afleiðingum, komu í lifandi myndum fram fyrir sálarsjón hans, og hann bliknaði upp. f hræðslu sinni út af valdi hins illa í hans eigin lífi og meðan hann nærri því máttvana var að berjast við hið tæl- andi og ógnandi myrkravald, sem risið hafði upp að nýju, missti hann hugsanaþráðinn, sem hann hafði ætlað sér að rekja allt að fyrstu uppsprettu hins vonda. Allar hinar einstöku myndir þess, sem freistað hefir mannssálnanna og truflað þær, rann fyrir augum anda hans saman og varð að einni einustu skelfingar-veru, er lagði sig með óákveðnu ummáli eins og þokuslæða yfir gjörvallan heiminn. f þoku- slæðu þeirri hinni takmarkalausu sá hann vonbrigða-blæju þá, er faðir lyginnar, höfðingi þessa heims, felur sig í. Hann sá ekki aðeins sjálfan sig, heldur og allan hinn skap- aða heim — enn og allt til síðustu tíðar — liggjandi eins og greftraðan djúpt niðri í hinu illa, — og honum þótti hinn mikli óvinur sálnanna grípa í sig og hrífa sig út fyrir endi- mörk jarðarinnar og alla stjörnuhimnana, til þess að sýna honum vald hins illa. Hann hélt þó enn í hendinni á penn- anum með svarta dropanum í. Kenndi hann nú alls hins andlega afls síns og skoraði með hinum sterkustu orðum á hinn illa anda að hverfa aftur þaðan er hann væri kominn og fela sig í dropanum, sem vígður var til hugsunar hans. Aflið, sem hélt honum yfir hinu óendanlega úthafi heims- víðáttunnar, sýndist nú renna saman og hverfa inn í upp- sprettu sína, frumdepil möguleika síns í blekdropanum litla svarta, sem titrandi loddi við pennasnáp særandans. Dropinn féll niður, en gjörvöll hin takmarkalausa heims- víðátta varð af því svört fyrir augum mannsins, eins og svartasta grafarhvelfing. Penninn var dottinn úr hendi hans, og í óskaplegri skelfing steypti hann sér sjálfur út í mytkrið óendanlega. „Miskunnsami guð og frelsari!“ — hrópaði hann og þrýsti að brjósti sér krossmarkinu, sem hann hafði ósjálfrátt gripið þaðan, er það stóð við lampann hans, áður en hann varð frá sér numinn í hinni svimandi sýn. Það var nú, að honum virtist, eins og líkneskið af frelsaranum lifnaði við í hendi hans og horfði á hann með tár hins eilífa, almáttuga kærleika í augunum.

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.