Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.03.1953, Page 20

Sameiningin - 01.03.1953, Page 20
18 Sameiningin afslátt á fargjaldi, og fría ferð til Victoria. Vinir og vanda- menn geta einnig slegist með í förina, og notið allra hlunn- inda, sem að ofan getur, enda þótt þeir séu ekki erindrekar á þingi. Náttúrufegurðin á þessari leið er óviðjafnanleg. Gest- risni strandabúa er rómuð og alkunn. Starfsmálin bíða úr- lausnar. Kirkjufélagið sækir fram. Þótt það breyti starfs- háttum sínum, skeikar það í engu frá upphaflegu takmarki sínu. Hvað sem tungumálinu líður verður þetta kirkiuþing íslenzkt í anda. Þangað verða allir velkomnir sem vilja efla það, sem bezt er á meðal vor: sanna guðrækni og skynsam- lega þjóðrækni. ---------☆---------- Safnaðafréttir Söfnuðurinn í Minneota er nýbúinn að eignast vandað „Hammond“ orgel, og var það formlega vígt og tekið tii notkunar 26. febrúar í vetur. Orgelið kostaði $1,250,00. Kven- félag safnaðarins hefir haft fjársöfnun með höndum í all- mörg ár í þeim tilgangi að kaupa orgel fyrir kirkjuna, og höfðu þær safnað sex hundruð dölum, er þeim barst viðlíka upphæð frá Mr. Jóseph Gíslason, sem hann gaf í minningu um fyrri konu sína. Orgelið er helgað minningu látinna meðlima og vina safnaðarins, og flestar gjafirnar, sem fram hafa verið lagðar, hafa verið minningargjafir um látna sam- ferðamenn, og komið í stað blóma. Vissulega er það varan- legri og hagkvæmari minning, heldur en blessuð blómin, sem fölna á einni hélunótt, þótt fögur séu. ☆ ☆ ☆ ☆ Hinn ungi söfnuður kirkjufélagsins í Cavalier, er á hröðu þroskaskeiði. Meðlimatalan hefir tvöfaldast frá því söfnuðurinn var stofnaður um haustið 1949. Kvenfélagið hefir nýlega keypt borð og stóla fyrir sjö hundruð dollara. Ungmennakór hefir verið myndaður, og fer hann oft með prestinum í sjúkravitjanir. Er hér um nýmæli að ræða, sem vel er athugunarvert fyrir aðra presta og söfnuði. ☆ ☆ ☆ ☆ Söfnuðurinn á Gimli mun vera í þann veginn að hefja byggingu á nýrri, stórri og fagurri kirkju, og hefir falið safnaðarnefndinni að koma verkinu í framkvæmd. Þetta er

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.