Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.10.1961, Page 27

Sameiningin - 01.10.1961, Page 27
Sameiningin 25 guðfræðikennari við Wycliffe College í Toronto, og jafn- framt prestur við St. James dómkirkjuna þar í borg. Árið 1936 fluttist hann til Ástralíu, og átti þar heima upp frá því. Á barnsaldri fékk hann áhuga fyrir íslandi og íslenzkum fræðum. Þakkar hann það móður sinni, sem hann tileinkar fyrstu Passíusálmaþýðingar sínar með þessum orðum: „Til móður minnar, sem fyrst kenndi mér söguna um krossinn og vakti hjá mér áhuga á íslenzkri þjóð.“ Kveðst hann hafa byrjað að læra íslenzku af sjálfsdáðum fimmtán ára gamall. Nokkra bréflega tilsögn fékk hann í málinu löngu síðar hjá dr. Jóni Bjarnasyni. Árið 1921 heimsótti hann ísland, og fór þá rakleiðis á slóðir Hallgríms Péturssonar, á Saurbæ á Hval- fjarðarströnd, og víðar. Þessi ferð varð honum mikil fróð- leiksuppspretta um hagi hins mikla sálmaskálds, og styrkti ásetning hans að endurskoða fyrri þýðingar sínar á trúar- ljóðum hans og færast æ meira í fang í þessu efni. Fyrsta þýðingasafn hans kom út í Lundúnum árið 1913 og nefndist: The Passion Hymns of Iceland. Þessar þýðingar eru þó ekki eingöngu úr Passíusálmunum, heldur er hér um úrval trúarljóða að ræða eftir sjö íslenzk sálmaskáld frá ýmsum tímu. Síðar komu ný þýðingasöfn úr Passíusálm- unum: Meditatoins on the Cross, Toronto, 1921; og Icelandic Meditations on the Passion, New York, 1923. Önnur íslenzk helgiljóð þýddi hann einnig, svo sem Sólarljóð og Lilju. Allmikið liggur eftir hann af óprentuðum þýðingum úr íslenzkum ljóðaakri. Yfirleitt einkennast þýðingar hans af nákvæmri túlkun og djúpri virðingu fyrir viðfangsefninu. Nokkra viðurkenningu hlaut hann af hálfu íslendinga fyrir starfsemi sína. íslenzka ríkið sæmdi hann riddara- krossi, og Þjóðræknisfélag íslendinga í Vesturheimi gerði hann að heiðursmeðlimi sínum. Hann lætur eftir sig ekkju, Evu, sem á heima í Sydney, og tvö börn, son og dóttur, í Bandaríkjunum.

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.