Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.10.1961, Side 29

Sameiningin - 01.10.1961, Side 29
Sameiningin 27 sonu, Árna verkfræðing og Ármann háskólarektor, báða bú- setta í Reykjavík. Einnig tvær dætur, Laufeyju og Guðrúnu. Sjálfum var honum fyrirmunað fátæktar vegna í æsku að ganga langskólabrautina. En hann naut þeirrar gleði að sjá sonu sína halda upp á hæsta tindinn í fræðslukerfi þjóð- arinnar, sem hann sjálfur hjálpaði til að skapa og unni svo mjög. Allir, sem til hans þekkja, munu sammála um, að hann var gæfumaður á Guðs vegum. Kirkjufélagsfréttir Séra Walter Becker var formlega settur inn í embætti sem sóknarprestur St. Stephens kirkjunnar í St. James, af forseta Kirkjufélagsins, Dr. V. J. Eylands, sunnudaginn 26. febrúar s. 1. Dr. G. A. Heimann, prestur við St. Peters lút- ersku kirkjuna í Winnipeg tók einnig þátt í athöfninni, en hann er stjúpfaðir séra Walters. Dr. Earl Treuch, fram- kvæmdarstjóri Canadian Lutheran Council, flutti kveðjur. Séra Walter er fæddur í Winnipeg árið 1918, sonur séra H. Becker heitins, sem um skeið var forseti Western Canada Synod. Séra Walter er guðfræðingur frá lúterska presta- skólanum í Saskatoon, hann hefur þjónað ýmsum sveita- sóknum á sléttunum í Mið-Kanada, en síðustu árin hefur hann þjónað söfnuðum í borgum Ontario. Séra O. Jack Larson, prestur í Árborg, hefir sagt lausum prestskap þar, og tekið kalli frá “Board of American Mis- sions” og mun hann takast á hendur að stofna nýjan söfnuð í Edmonton, Alta. Séra Jack þjónaði í Árborg í fjögur ár. Á þeim tíma var Árborg-Riverton prestakallinu skipt í tvennt, og séra Richard Magnuson kallaður til Riverton, kirkjan á Árborg var einnig endurbyggð og lagfærð að miklu leyti. Séra Jack var formaður fræðslunefndar Kirkju- félagsins, meðráðarmaður Viking Luther League, ritstjóri

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.