Sameiningin - 01.03.1945, Qupperneq 26
40
Þú einn ert líknar—lífgjöf mín,
mín lífssól björt er náöin þín.
1 sorgum hjá þér sól mér rís,
og sigur lífs hjá þér er vís,
og eilífð hjá þér skœr mér skín,
og skýin lofa dýrðar-sýn.
Þú emn varst blessuð ársól mín,
til cefiloka —• birtan þín.
Hjá þér býr kraftur kœrleikans,
hið konunglega veldi hans;
hann rís í mætti helgur, hár,
og himinn Ijómar, jörð og sjár.
Ó, fagnið Drotni, lýðir lands,
Sjá, lífið vex í sporum hans.
Hjá þér í hjarta lifna Ijóð
og lífsins strengir helgum óð;
því anda mannsins œðsta þrá
fær auð og lífsins brauð þér hjá.
Þér syngi lof alt líf á jörð’
Æ, lít á veika þakkargjörð’
N. S. Thorláksson.
í Kobe, Japan, á 73. fæðingardegi, 1930.
*
Á hinum skelfilegu grimdardögum, sem dunið hafa
yfir mannkynið, er freistingin til hefndar nærri óviðráðan-
leg. Frézt hefir samt, að Kínverjar séu nærri ótrúlega
lausir við hefndarhug gagnvart Japanítum. Noregur hefir
sýnt aðdáanlega staðfestu í því að berjast fyrir sannleik-
anum, gagnvart þýzka ofbeldinu. En það hefir einnig frézt
þaðan að öflin, sem berjast á móti kúgun, ranglæti og lýgi,
séu að bvetja þjóðina til stiltrar, réttlátrar hugsunar. Hún
er vöruð við hefnigirni.
Köllum Guðs kom til Davíðs þegar hann, með trú-
mensku var að sjá um kindur úti á víðavangi.