Sameiningin - 01.03.1945, Blaðsíða 30
44
sanna kristni meðal vor.
Sjálfsagt er að gefa gaum að góðri meðferð og réttri
tilhögun, en mestu máli skiftir hinn kristni vitnisburður.
“Eitt er nauðsynlegt”, að líf vort og starf hvíli á hinni réttu
undirstöðu: “enginn getur annan grundvöll lagt en þann,
sem er lagður, sem er Jesús Kristur”.
Það er sameining vor.
“Sameiningarinnar’ ’ á 60 ára
afmæli hennar
í sameining andans er vöxturinn vís,
í verndinni Drottins upp sáðkornið rís,
til lífsins vor lagður sá forði.
Sjá draumarnir rætast, í djúpinu grær,
hið dýrðlega áform sem upptök sín fær,
frá skaparans eilífa orði.
Nú sextíu ára þitt æviskeið er
í andlega víðsýnið kraftur þig ber,
því frjálst er að leita og finna.
Þú veglega starfið í vöggugjöf hlauzt
sem veitir þér lífsþróttinn_ hindrunarlaust
með hjálp Guðs að vaka og vinna.
Þú ung fórst að heiman og ung ertu enn,
og inn á hvert heimili kemur þú senn,
þú velkomni gesturinn góði.
Með íslenzka þolgœðið þrautunum í,
og þræðina sterku sem fléttast á ný,
— frá glötun er varinn sá góði.
Við óskum þess öll sem unnum þér bezt
að áfram þú haldir að flytja sem mest,
af lifandi lausnarans fræðum.
Þeir styðja þig að því sem hýsa nú hann
hirðirinn góða, sem veginn oss fann
sem liggur að himneskum hæðum.
Ingibjörg Guðmundsson, Tujunga, Cal.