Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.03.1945, Page 43

Sameiningin - 01.03.1945, Page 43
57 þing U.L.C.A. í Minneapolis, og nú hefir birst í “Our Parish Messenger”. Mér finst að við ekki hafa lært að styðja þessa kristilegu starfsemi út á við, og utan vébanda okkar eigin safnaða og sveita neitt nálægt því eins vel og eins samviskusamlega, eins og starfið heima fyrir. Mér finst það beinlínis átakan- legt að það skuli ekki vera okkur ljósara, en nú virðist vera, hve brýn og hrópandi þörfin er að styðja hið víðtækara kristilega starf með, að minsta kosti eins brennandi áhuga eins og við styðjum starfið heima fyrir. Mér er ómögulegt að skilja að það sé að setja markið nógu hátt. ef maður bindur það við það eitt að líta sem best eftir sínum eigin hag. Á þingi U.L.C.A. í haust er leið var lögð mikil áherzla á það bæði beinlínis og óbeinlínis, að þegar gjaldþol manna hér í álfu hefir mikið aukist, en þarfirnar á hjáip annars- staðar margfaldast, þurfum við að læra að styðja trúboðs- starfið, og allt kirkjulega starfið út á við miklu meira en við höfum áður gjört. Ef t. d. einn lítill sveitasöfnuður hefir í liðinni tíð gjört það að fastri venju að leggja árlega $25.00 í starfssjóð kirkjufélags síns, þurfi hann nú að auka það tillag að minsta kosti um helming, — eða heist að margfalda það, vegna þess að möguleikar eru meiri og þörfin miklu meiri. Tillaga Mr. S. O. Bjerring í áminstri ræðu hans mun vera í fylsta máta sanngjörn, og jafnframt líka mjög heppi- leg, að hver einasti söfnuður, í samráði við þau félög, sem innan safnaðarins starfa, setji sér ákveðið mark að stefna að hvað fjárframlög snertir til kirkjufélagsstarfseminnar. Þar sem áður hefir verið eitthvað ákveðið til að stefna að, verður nú að hækka það eftir beztu möguleikum, Eg held að ein allra bezta leiðin til að auka tillögin frá hinum ýmsu söfnuðum til hinnar víðtækari kristilegu starf- semi sé sú, að einstaklingar fari nú að leggja fram tillög frá sér í þann sjóð, sem söfnuðurinn safnar til hinna almennu starfa. Mig minnir að fyrr á árum væru margir einstakling- ar innan okkar kirkjufélags, sem legðu myndarlegar upp- hæðir frá sér til trúboðs og annarar almennrar kirkjulegrar starfsemi. Nú virðist þetta hafa algjörlega lagst niður. Og er það meira en lítið raunalegt að svo skuli vera komið. Það er stór skaði fyrir alla slíka starfsemi; en það er líka mikill skaði fyrir þá örlátu gefendur sjálfa. Einhverju góðu og hollu hefir þannig verið kippt burt úr þeirra lífi. Eg vil í mikilli einlægni hvetja einstaklinga safnaðanna til að taka

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.