Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.03.1945, Síða 47

Sameiningin - 01.03.1945, Síða 47
61 efnum og trúarlegum; jafn réttilega gerum við til þeirra miklar kröfur, hæfandi þeim, sem svo virðulegan sess skipa og gerzt hafa boðberar hinna æðstu lífssanninda. En hvað um þær kröfur, sem prestarnir með fullum rétti mega’gera til okkar kristinna leikmanna? Og öllu fremur, hvað um þær kröfur, sem kristni og kirkja gera til okkar? Lítilmannlegt er það og óvænlegt til andlegrar þrosk- unar, að vera innan kirkjunnar einungis þiggjandi en alls eigi veitandi.” Benti ræðumaður síðan á, að áhugasömum leikmönnum byðust mörg tækifæri til nytsams og andlega auðgandi kirkjulegs starfs, fyrst og fremst með því að sækja kirkju sína og taka þátt í guðsþjónustunni, og þá eigi síður í sunnu- dagaskólastarfinu og í hinum ýmsu safnaðarfélögum, sem starfrækt eru kirkjumálum til eflingar og til aukinna kynna og meiri samvinnu meðal safnaðarfólksins. Taldi hann það eiga að vera metnað leikmanna að eiga sinn fulla skerf í starfi kirkjunnar inn á viö og út á við. Dr. Beck vék síðan að hinu ábyrgðarmikla hlutverki kirkjunnar í heiminum, kröfum þemi, sem gera verður tii hennar um hluttöku í lausn vandamála mannkynsins, og lauk máli sínu með þessum orðum: “Sú sannfæring mín hefir orðið sterkari með ári hverju, að því aðeins geti varanlegur friður orðið í heimi hér, er mannkyn allt lærir betur og sannar að ganga á Guðs veg- um; menn verða, með öðrum orðum, að tileinka sér 1 sem ríkustum og víðtækustum mæli bræðralags- og kærleiks- hugsjón kristninnar, ef jörðin á ekki að verða framvegis, eins og nú á þessum örlagaþrungnu tímum og svo oft áður í sögunni; blóðvöllur og bræðravíga”. * Mikill skortur á prestum í Rússlandi (Kirkjublaöið) Skortur á prestum í Rússlandi er mjög tilfinnanlegur. Fjölda margar kirkjur hafa verið opnaðar á ný, en ekki reynzt auðvelt að útvega presta til þeirra. — Undirbúningur er þegar hafinn að opnun prestaskóla, og skipulega er unnið að því að koma á kvöldnámskeiðum fyrir presta efni. Miðar starfi þessu vel áfram. — (I.C.P.I.S. Geneva).

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.