Sameiningin - 01.03.1945, Qupperneq 48
62
“Sameiningin” þakkar
Sameiningin tjáir sínar innilegustu þakkir hinum ýmsu
vinum er gerst hafa kaupendur blaðsins, nú í síðustu tíð.
Sérstakar þakkir vill hún bera fram tryggum stuðnings-
mönnum er hafa aflað henni fleiri eða færri kaupenda, fylgja
nöfn þeirra hér með:
Séra Rúnólfur Marteinsson, Vancouver, B. C. Mrs. B.
Guðmundson, Tujunga, Cal. Mr. M. M. Jónasson, Árborg,
Man. Mr. Magnús Gíslason, Árborg, Man. Mr. H. J. East-
mann, Riverton, Man. F. P. Sigurðsson, Riverton, P.O.
Alls hafa “Sameiningunni” bæzt um sjötíu nýjir kaup-
endur síðan um kirkjuþing.
Frá skritborði
Það þótti fréttnæmt þegar sú fregn barst út frá þingi
Sameinuðu lútersku kirkjunnar í Minneapolis í október, að
nýr forseti hefði verið kosinn í þeirri miklu deild og að
presturinn Franklin Clark Fry hefði
Dr. Franklin C. Fry. orðið fyrir valinu. Dr. Knubel var
búinn að vera forseti í tuttugu og
fimm ár. Hefir hann notið bæði mikils álits og vinsælda,
en er nú nokkuð við aldur. Engin beiðni kom þó frá honum
um að fá lausn fráembætti. Hann leit eflaust svo á, að það
ætti að vera á óhindruðu valdi kirkjunnar að velja forseta.
Hann hafði aldrei lagt drög fyrir að ná embættinu og taldi
svo óviðeigandi, að segja nú að hann væri ekki að sækjast
eftir embættinu. Enginn viðbúnaður hafði verið gerður af
einum eða öðrum. Þannig kom málið til þings. Menn greiddu
óháðir atkvæði. Hver greiddi atkvæði eftir bezta viti og
samvizku án nokkurra útnefninga. Sú aðferð tíðkaðist í ís-
lenzka kirkjufélaginu í tíu ár. Við fimtu atkvæðagreiðsluna
var Dr. Fry kosinn. Það féll enginn skuggi á Dr. Knubel né
heldur á neinn annan í sambandi við kosningarnar. óhindr-
að lýðræði hafði notið sín undir þeirri kosningaaðferð, sem