Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.03.1945, Page 51

Sameiningin - 01.03.1945, Page 51
65 Noregi hefir verið aflstöð mótspyrnunnar gegn yfirgangi kúgunarvaldsins. Yfirlýsingin kemst svo að orði: “Yér, sem kristnir menn utan lútersku kirkjunnar viljum bera vitni um trygð hinna fimm miljón lúterskra kirkjumanna í Bandaríkjunum við lýðræðið og afbiðja oss að eiga hlut- deild í þeirri von að næsta sveiflan í rás tímans bindi enda á áhrif Lúters á Þýzkalandi. Fremur vildum vér vona að þar mætti endurnýjast andi Lúters, sem skipaði trygð við Guð ofar öllu öðru.” Oft er vitnað til þess í umræðum um opinber mál nú, hver muni vera hugur hermanna þjóðanna um þessi eða hin mál, sem ofarlega eru á dagskrá. Margir ímynda sér t. d. að meiri hefndarhugur muni ríkja meðal Hugur hermanna þeirra gagnvart óvinaþjóðunum en með- al almennings heima fyrir. Ýmislegt bendir þó til þess að afstaða þeirra sé einmitt hófstiltari í ýmsum viðkvæmum málum en þeirra, sem ekki eru í herþjónustu. Við kosningar í nóvember voru greidd at- kvæði í ríkinu Colorado um lög, sem miðuðu að því að hindra að fólk af japönskum ættstofni gæti átt þar eignir. Lögin féllu heima fyrir, en ýmsir gerðu sér von um að at- kvæði hermannanna, þegar þau yrðu talin, mundu breyta niðurstöðunni. Svo varð þó ekki Hlutföllin á móti lögun- um urðu hærri meðal þeirra er voru í herþjónustu en annara. Ætti þetta að vera gleðiefni öllum, sem meta hug- sjónir lýðræðis og mannréttinda. Kirkjunnar lýður ber sér- staka ábyrgð í þessu efni. Að sjálfsögðu ber að gæta allrar varúðar að æðisgengið hervald ekki aftur í náinni framtíð geti tendrað alheimsbál ófriðar, en engu að síður þarf kristn- inni að vera ljóst að hennar hlutverk er að eflia bræðralag og einingu. Hvorki hefndarhugur eða hervald læknar mein þjóðanna eða beinir þeim á heppilegar leiðir. K. K. Ó. * Séra Haraldur Sigmar, D.D., hefir nú sagt upp þjónustu sinni í hinu víðlenda prestakalli sínu í Dakota, og tekur köllun Vaneouver safnaðarins. Hyggst hann að flytja til Kyrrahafsstrandar í júlí-mánuði næstkomandi. Söfnuðirnir er Dakota prestakallið mynda munu nú þegar byrjaðir á undirbúningi til prestsköllunar.

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.