Sameiningin - 01.03.1945, Qupperneq 52
66
Biblía í hvers manns höndum
(Kirkjuritið)
Á 125 ára afmæli Norska Biblíufélagsins komst Berggrav
biskup m. a. svo að orði:
“Markmið vort er þetta: Biblía í hvers manns höndum.
Og bak við það eygjum vér annað mark: Hver maður gleðjist
yfir Biblíunni sinni. Vér höfum einnig nálgast það mark.
Þeir eru ekki fáir, sem vita það nú, að Nýja testamentið er
dýrasta eign þeirra. Þegar vér lítum til baka yfir liðið ár,
sjáum vér, hvernig andi Guðs hefir látið orð Guðs verða
nýtt fyrir oss og lifandi með hverjum degi. ... Ritningarorð
hafa verið eins og dýrar perlur. Fjöldi fólks hefir safnast
saman um opna Biblíuna á mótum, í heimahúsum og við
Biblíulestur. Margir, sem þola þjáningar, einangraðir frá
öðrum, lesa ekkert annað en Biblíuna. Hún er eina ljós
þeirra. Fögnuður yfir Biblíunni meiri en nokkuru sinni áður
hefir borist um alt landið.”
*
ÞAKKARORÐ
Á sextugs afmœli Sameiningarinnar, finn eg mér skylt,
sem framkvæmdarstfóri hennar, að þakka öllum velunnurum
hennar þann margháttaða stuðning er þeir hafa veitt ritinu
síðan það hóf göngu sína, og þá ekki sízt á því tímabili, sem
eg hefi annast ráðsmensku þess; eg þakka þeim öllum
hfartanlega, sem unnið hafa að útbreiðslu ritsins með söfnun
nýrra áskrifenda og eins hinna, sem hlynt hafa með auglýs-
ingum að fjárhag þess.
Eg þakka ennfremur ritstjórum Sameiningarinnar, frá
fyrstu tíð, fórnfúst starf þeirra í þágu ritsins og kristindóms-
málanna meðal fólks vors í þessari álfu.
Mrs. B. S. Benson,
Framkvstj. Sameiningarinnar.