Fréttablaðið - 05.03.2011, Blaðsíða 48
5. mars 2011 LAUGARDAGUR4
Vegna aukinna umsvifa óskar Jötunn Vélar eftir að
ráða sölumann til starfa sem fyrst. Leitað er eftir
metnaðarfullum einstaklingi með mikla þjónustu-
lund. Um framtíðarstarf er að ræða.
Starfssvið.
Sala og upplýsingagjöf varaðandi mjaltakerfi,
fóðurkerfi, fjósinnréttingar og byggingar.
Í starfinu felst umfangsmikil ráðgjöf og tilboðs-
gerð til viðskiptavina Jötunn Véla sem hyggja á
breytingar á byggingum og aðstöðu gripa.
Í starfinu felast mikil samskipti við viðskiptavini
og nokkur ferðalög innanlands og erlendis.
Hæfniskröfur.
Víðtæk reynsla af almennum sveitastörfum.
Enskukunnátta og kunnátta í dönsku er kostur.
Iðnmenntun er kostur.
Nánari upplýsingar veitir Guðmundur Þór
Guðjónsson í síma 4 800 400.
Umsóknir sendist á gudmundur@jotunn.is.
Frestur til að skila inn umsóknum er til 15. mars.
Jötunn Vélar er kraftmikið vaxandi fyrirtæki sem
sérhæfir sig í sölu og þjónustu við landbúnað.
Fyrirtækið er stærsti innflytjandi dráttarvéla
á landinu. Jötunn Vélar er staðsett á Selfossi
og þjónustar þaðan allt landið í samvinnu við
þjónustuverkstæði um allt land. Starfsmenn
fyrirtækisins eru 18.
SÖLUMANN
vantar í öfluga liðsheild
ÍS
LE
N
SK
A
S
IA
.I
S
PO
S
53
97
6
03
/1
1
Hlutverk Póst- og fjarskiptastofn-
unar er að tryggja hagkvæm,
örugg og aðgengileg fjarskipti
og póstþjónustu og efla virka
samkeppni á markaði.
Starf stofnunarinnar mótast
af alþjóðlegum kröfum og tekur
breytingum í samræmi við öra
alþjóðlega þróun. Meginþungi
starfseminnar eru fjarskipti
og tengd mál.
Hjá PFS starfa 24 starfsmenn,
aðallega sérfræðingar við úrlausn
tæknilegra, viðskiptalegra og
lagalegra verkefna er tengjast
hlutverki stofnunarinnar.
PFS hvetur konur jafnt sem
karla til að sækja um störf
hjá stofnuninni.
Sjá nánari upplýsingar
á www.pfs.is
Nánari upplýsingar um starfið veitir Þorleifur Jónasson, forstöðumaður tæknideildar, í síma 510 1505, thorleifur@pfs.is
Laust er til umsóknar starf sérfræðings
í tæknideild Póst- og fjarskiptastofnunar
Við leitum að öflugum sérfræðingi til liðs við tæknideildina. Sérfræðingur vinnur með öflugu teymi starfsmanna deildarinnar sem
vinna náið saman að net- og upplýsingaöryggi ásamt skipulagi tíðnimála, úthlutun tíðna og númera, eftirliti með ljósvakanum o.fl.
Starfssvið
Eftirlit með reglum um net- og upplýsingaöryggi, skipulag tíðnimála, eftirlit með ljósvakanum ásamt stuðningi við störf annarra deilda.
Þátttaka í innleiðingu gæðaferla tæknideildar er einnig mikilvægur þáttur í starfinu.
Menntun og reynsla
Háskólapróf í verk- eða tæknifræði eða sambærileg menntun. Framhaldsnám eða starfsreynsla á sviði fjarskipta er kostur.
Aðrar hæfniskröfur
Umsækjendur þurfa að hafa gott vald á íslensku og ensku, búa yfir ríkulegri samskiptafærni ásamt öguðum og skipulögðum vinnubrögðum.
Viðkomandi þurfa jafnframt að eiga auðvelt með að starfa sjálfstætt sem og í hópi og búa yfir sveigjanleika og festu sem nauðsynleg er í
samstarfi við fjarskiptafélög á Íslandi.
Um er að ræða krefjandi starf í síbreytilegu og spennandi umhverfi þar sem gerðar eru miklar fagkröfur.
Umsóknarfrestur er til og með 20. mars nk. Umsækjendur eru beðnir um að sækja um starfið á heimasíðu stofnunarinnar www.pfs.is
Með umsókn skal fylgja ferilskrá ásamt viðeigandi prófgögnum í viðhengi. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu
hefur verið tekin.
Póst- og fjarskiptastofnun lítur svo á að umsókn gildi í 6 mánuði frá dagsetningu hennar, nema umsækjandi ákveði umsókninni skemmri gildistíma.