Fréttablaðið - 05.03.2011, Blaðsíða 82
5. mars 2011 LAUGARDAGUR50 50
menning@frettabladid.is
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Laugardagur 5. mars 2011
➜ Tónleikar
16.00 Hljómsveitin Lame Dudes kokk-
ar upp fjölbreytt blúskaffi á Café Rót í
dag kl. 16. Frítt inn. Allir velkomnir.
22.00 Hljómsveitin Thin Jim verður
með tónleika í kvöld kl. 22 á Kaffi
Rósenberg. Flutt verður efni á væntan-
legri plötu sveitarinnar ásamt nýju
góðgæti.
22.00 Stella Haux og vinir halda
tónleika á Ob-La-Dí-Ob-La-Da í kvöld
kl. 22. Ásamt Stellu koma Andrea
Jónsdóttir, Andrea Gylfadóttir, Birna
Þórðardóttir og hljómsveitin Gæða-
blóð fram. Aðgangseyrir er kr. 1200.
➜ Sýningar
16.00 Sýning Ólafar Nordal, Féþúfur
og lásagrös, opnar kl. 16 í dag í
Suðsuðvestur. Á sýningunni er að finna
fjögurra blaða smára frá síðasta sumri
ásamt ljósmyndum af fuglaþúfum.
Opnunartími Suðsuðvestur er frá 14-17.
➜ Upplestur
14.00 Opið hús Félags eldri borgara
í Kópavogi verður í Félagsheimilinu
Boðanum kl. 14. Um upplestur sjá
Guðlaug Erla Jónsdóttir og Sigurlaug
Ólöf Guðmundsdóttir. Guðni Stefáns-
son leikur á harmonikku.
16.00 Vinjettuhátíð verður í
Narfeyrar stofu í Stykkishólmi í dag
kl. 16-18. Lesið verður upp úr verkum
Ármanns Reynissonar og Karl Olgeirs-
son sér um harmonikkuleik. Félagar úr
Leikfélagi Stykkishólms og nemendur
úr grunnskólanum lesa upp ásamt höf-
undi. Aðgangur er ókeypis.
➜ Dansleikir
20.30 Skvettuball Félags eldri borgara
í Kópavogi verður haldið kl. 20.30.
Þorvaldur Halldórsson leikur og syngur
fyrir dansi. Veitingar á góðu verði. Allir
velkomnir.
➜ Myndlist
15.00 Sýningin Þrykkt verður opnuð
í Listasal Reykjanesbæjar í dag kl. 15.
Á sýningunni eru verk eftir félaga úr
félaginu Íslensk grafík auk þess sem
sögu grafíkur á Íslandi eru gerð skil.
Safnið er opið virka daga frá kl. 12-17 og
um helgar frá kl. 13-17. Sýningin stendur
til 17. apríl.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
KOMDU Í ÖLL HELSTU
PARTÝIN MEÐ OKKUR
Meiri Vísir.
Meira sjónvarp, meira útvarp, meiri fréttir, meiri upplýsingar,
meiri umræða, meira líf, meiri íþróttir, meiri virkni, meira úrval.
Þú færð meira af öllu á Vísi.
Carmina Burana eftir þýska tón-
skáldið Carl Orff verður flutt af
150 ungmennum í dag, á morgun
og á mánudag.
Háskólakórinn og Sinfóníuhljóm-
sveit æskunnar flytja verkið undir
stjórn Gunnsteins Ólafssonar.
Einsöngvarar eru Bylgja Dís
Gunnarsdóttir, Hlöðver Sigurðs-
son, Jón Svavar Jósefsson og Pétur
Úlfarsson og einleikari á fiðlu er
Gunnhildur Daðadóttir.
Háskólakórinn var stofnaður
árið 1972. Í kórnum syngja nem-
endur úr öllum deildum háskól-
ans og öðrum menntastofnunum
á háskólastigi, bæði íslenskir og
erlendir.
Sinfóníuhljómsveit unga fólksins
eða Ungfónía, var stofnuð haustið
2004. Hljómsveitin er skipuð nem-
endum úr tónlistarskólum af
höfuðborgarsvæðinu á aldrinum
13-25 ára. Einleikarar með hljóm-
sveitinni eru jafnan nemendur að
ljúka framhaldsnámi erlendis eða
eru nýkomnir heim frá námi.
Tónleikarnir í dag og á morgun,
6. mars, verða haldnir klukkan 17
en mánudagskvöldið 7. mars klukk-
an 20. Miða má panta á netfanginu
kor@hi.is og í síma 823 7888.
Æskufólk flytur
Carmina Burana
TÓNLISTARFLUTNINGUR Í LANGHOLTSKIRKJU Gunnsteinn Ólafsson stýrir Ungfóníu á
fyrri tónleikum sveitarinnar.
Doktorsritgerð Birnu
Bjarnadóttur um skáldskap
Guðberg Bergssonar kemur
út hjá útgáfunni McGill-
Queen‘s Kanada í haust.
Birna segir mál til komið að
skáldskapur Guðbergs fái
meiri athygli erlendis.
Holdið hemur andann, doktors-
ritgerð Birnu Bjarnadóttur um
skáldskap og fagurfræði Guðbergs
Bergssonar, kemur út í haust á
ensku á vegum kanadíska forlags-
ins McGill-Queen‘s, einni virtustu
útgáfu á sviði fræðirita þar í landi.
Í ritinu skoðar Birna verk Guð-
bergs í samhengi við hugmyndir
innlendra og erlendra skálda og
fræðimanna um fagurfræði og
skáldskap.
„Í stuttu máli fjallar þetta um
mörk lífs og skáldskapar,“ segir
Birna. „Við vitum að Guðbergur
er frægur fyrir að vera einn helsti
módernisti íslenskra höfunda
og hann er sagður vera arftaki
Halldórs, Þórbergs og Gunnars í
íslenskum nútímabókmenntum. En
það sem ég gerði mér smám saman
grein fyrir eftir að ég ákvað að
skrifa doktorsritgerð um fagur-
fræði Guðbergs er að hann er ekki
síður mikilhæft tilvistarskáld.“
Birna segist hafa í rannsóknum
sínum ratað inn á ákveðna slóð
sem sé gegnumgangandi í verkum
Guðbergs.
„Og þessi slóð er í rauninni
hjartað í heimsbókmenntunum og
einnig rauði þráðurinn í vestrænni
frásagnarhefð, í rauninni tilvistar-
saga mannkyns.
Guðbergur er auðvitað alltaf
í samræðu við okkur, þjóð sína;
hún á sér stað á þessu landi, hún
er við okkur og hún fjallar um
íslenskt samfélag og sögu þess. En
þetta gerir hann með hliðsjón af
tilvistar sögunni og hvernig okkur
þá sem manneskjum reiðir hrein-
lega af í lífinu.
Þetta er rauði þráðurinn og út
af því fór þetta ferðalag mitt að
spanna aldir, því Guðbergur er að
rekja aldagamla sögu um tilraun-
ina að vera manneskja.“
Birna varði ritgerðina við
Háskóla Íslands árið 2003. Sama
ár sigldi hún vestur um haf og
fékk stöðu við íslenskudeild
Háskólans í Manitoba. Fljótlega
eftir að út var komið fór hún að
svipast um eftir þýðanda til að
snara doktorsritgerðinni yfir á
ensku. Það gekk eftir en þýðingin
tók sinn tíma. Í fyrravor var hún
hins vegar komin með endanlega
útgáfu þýðingarinnar í hendurnar
og sendi hana til McGill-Queen‘s,
sem sér hæfir sig í útgáfu rit-
rýndra fræðirita.
„Þetta er ein af tveimur virt-
ustu útgáfum landsins,“ segir
Birna, „og langt því frá öruggt
þeir myndu fallast á að gefa bók-
ina út. Ég held hins vegar að það
hafi verið okkar gæfa að ritstjór-
inn sem við lentum á reyndist vera
ljóðskáld; það var eins og hann
skynjaði nógu fljótt að þarna var
eitthvað á ferð sem þessi útgáfa
gæti haft áhuga á.“
Við tók strangt ferli, þar sem
finna þurfti tvo lesendur til að
leggja mat á verkið.
„Það var ekki hlaupið að því, því
þeir þurftu ekki aðeins að vera vel
að sér um íslenskar bókmenntir og
menningu heldur líka í módern-
isma, evrópskum bókmenntum,
exístensíalisma og fagurfræði
nútímabókmennta.“
Það tókst og í nóvember síðast-
liðnum bárust forlaginu umsagnir,
sem voru afar jákvæðar.
„Ritstjórinn minn þorði að
minnsta kosti að ganga svo langt að
segja að það kæmi honum á óvart
ef verkið yrði ekki samþykkt til
útgáfu og í janúar fékk ég loksins
jáyrði um að bókin kæmi út í haust
og skrifaði undir útgáfusamning.
Í umsögnum ritrýna verksins
kemur fram að Guðbergur sé mik-
ilhæft skáld og hafi margt fram að
færa til að dýpka skilning manna á
módernísku skáldsögunni, en verk
hans séu lítt þekkt utan heima-
landsins þar sem hann skrifi á litlu
málsvæði.
„Það má kannski segja að það
sé bæði gæfa Guðbergs og ógæfa
að skrifa á íslensku. Hann er höf-
undur á heimsmælikvarða sem
skrifar á máli sem fáir tala“ segir
Birna, sem kveðst gera sér mikl-
ar vonir um að útgáfa bókarinnar
verði til þess að Guðbergur verði
loksins „uppgötvaður“. „Það hefði
auðvitað átt að gerast fyrir löngu.
Eitt er víst að hann á það skilið.“
bergsteinn@frettabladid.is
Andinn haminn í Kanada
BIRNA BJARNADÓTTIR Varði doktorsritgerð sína um fagurfræðina í skáldskap Guðbergs við Háskóla Íslands árið 2003. Sama ár
hélt hún til Kanada, þar sem hún kennir við Háskólann í Manitoba. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
DOMUS VOX Í GRENSÁSKIRKJU Domus Vox, sönghús Margrétar J. Pálmadóttur, efnir til maraþontónleika í Grensáskirkju á
sunnudag. Dagskráin hefst með messu klukkan 11, þar sem Stúlknakór Reykjavíkur leiðir sönginn. Að messu lokinni hefst samfelld dagskrá,
með tónlist tengdri kærleika og trú, í kirkjunni og safnaðarheimilinu. Miðar verða seldir við innganginn en innifalið í því er bollukaffi.