Fréttablaðið - 05.03.2011, Blaðsíða 10
5. mars 2011 LAUGARDAGUR10
Félagsfundur
Sjálfsbjörg félag fatlaðra á höfuðborgarsvæðinu,
heldur félagsfund þriðjudaginn 8. mars kl 19:30
í félagsheimilinu, Hátúni 12.
Fundarefni:
Hrefna K. Óskarsdóttir og Helga Björnsdóttir
flytja erindi:
Fullkomleiki og fegurð: vangaveltur um líkama,
konur og fötlun.
Kaffiveitingar
Allir velkomnir
BENSÍN SELT Á GOSFLÖSKUM Maður
á Filippseyjum hellir blýlausu bensíni
úr gosflösku á vélhjólið sitt, en þar er
hálfs lítra flaskan nú seld á tæplega
150 krónur. NORDICPHOTOS/AFP
SAMFÉLAGSMÁL Málum vegna kláms
og vændis hjá Stígamótum hefur
fjölgað á síðustu árum. Guðrún
Jónsdóttir, talskona Stígamóta,
segir það færast í aukana að konur
leiti til samtakanna í kjölfar hót-
ana þar sem ofbeldismennirnir
hafa tekið upp kynlífsathafnir eða
nauðganir og nota myndböndin
sem kúgunartæki.
„Eitt af því sem stafar mikil ógn
af er myndbirtingar. Ef það eru
til myndir af kynlífsathöfnum er
hægt að nota það sem beitt vopn
gegn fólki,“ segir hún.
Ný mál hjá Stígamótum voru
275 á liðnu ári. Árið á undan voru
þau 231, eins og kemur fram í nýj-
ustu ársskýrslu samtakanna. Alls
leituðu 123 einstaklingar til sam-
takanna og heildarfjöldi ofbeldis-
manna sem tilkynnt var um var
394. Starfskonur Stígamóta eru
fjórar og tóku þær saman 1.803
viðtöl á árinu 2010.
Í 97 prósentum tilvika eru það
karlar sem fremja kynferðisbrot-
in. Hlutfall karla sem leituðu til
Stígamóta á síðasta ári var í kring-
um 10 prósent og er það svipað og
hefur verið undanfarin ár.
Þegar aldur fórnarlamba er
skoðaður kemur í ljós að brotin
eru fyrst og fremst framin á ungu
fólki. Þetta fólk leitar til Stígamóta
áratugum eftir að brotin eru fram-
in. Tæp 30 prósent brotanna voru
framin þegar einstaklingarnir
voru á aldrinum 5 til 10 ára. Tæp 7
prósent gerðust þegar fórnarlömb-
in voru á aldrinum 0 til 4 ára.
„Fólk kemur hingað með mjög
gömul leyndarmál,“ segir Guðrún.
Í um 40 prósentum tilvika, þegar
um sifjaspell var að ræða, stóð
misnotkunin yfir í eitt til fimm ár.
Í rúmlega tíu prósentum tilfella
stóð það yfir í sex ár eða lengur.
„Ef þessar upplýsingar eru
bornar saman við aldursskipt-
ingu fórnarlambanna sést að mis-
notkunin varir á meðan ofbeldis-
maðurinn hefur aðgang að
barninu,“ segir Guðrún.
Stígamót eru nú að leita að hús-
næði til að opna athvarf fyrir konur
sem eru að koma út úr vændi. Verk-
efnið hefur nú þegar verið fjár-
magnað. Einnig er stefnt að því að
koma af stað sólarhringsþjónustu
á þessu ári.
sunna@frettabladid.is
Kúga konur
með kynlífs-
upptökum
Alls leituðu 275 manns til Stígamóta á liðnu ári en
það eru 44 fleiri en árið á undan. Það færist í vöxt
að ofbeldismenn noti kynlífsmyndbönd til að kúga
konur. Þjónusta Stígamóta verður bætt á þessu ári.
SKÝRSLAN KYNNT Anna Þóra Kristinsdóttir, Guðrún Jónsdóttir og Þórunn Þórarins-
dóttir kynna ársskýrslu Stígamóta fyrir 2010. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Fjöldi þeirra sem leituðu hjálpar vegna nauðgana og nauðgunartilrauna var
123, þar af voru þrettán hópnauðganir. Athygli vekur að fleiri nauðgarar not-
uðu hótanir sem þvingunartæki en ekki líkamsmeiðingar. Guðrún bendir á
að hegningarlögin geri ráð fyrir beinum líkamsmeiðingum í refsi rammanum
og það þurfi að skoða.
„Þegar konum er nauðgað fer oft á tíðum í gang ósjálfráð sjálfsbjargarhvöt
sem gerir það að verkum að þær frjósa algjörlega og reyna ekki að berja frá
sér,“ segir hún. „Það er hugsanlega eina leiðin til þess að sleppa sem best úr
eins hræðilegum aðstæðum.“
Fleiri nota hótanir en líkamsmeiðingar
Þú færð Fréttablaðið á kostnaðarverði
á 120 stöðum um land allt.
Nánari upplýsingar á
visir.is/dreifing
VIÐSKIPTI Capacent sendi í gær frá
sér fréttatilkynningu í tilefni af
frétt sem birtist í Fréttablaðinu í
gær. Þar kom fram að skiptastjóri
GH1, sem áður hét Capacent, hefði
óskað eftir því við efnahagsbrota-
deild Ríkislögreglustjóra að hafin
yrði rannsókn á sölu á rekstri og
vörumerki Capacent í september.
Þykir leika grunur á að veðsettar
eignir hafi verið seldar án heim-
ildar veðsala.
Í tilkynningunni frá Capacent
segir að fullyrðingar skiptastjóra
þess efnis að veðsettar eignir hafi
verið seldar eigi sér ekki stoð og að
forsvarsmenn fyrirtækisins íhugi
að höfða meiðyrðamál vegna ítrek-
aðra yfirlýsinga skiptastjóra um
lögbrot.
Jafnframt telur fyrirtækið mikil-
vægt að koma því á framfæri að
kröfu skiptastjóra um lögbann
á notkun nýrra eigenda á vöru-
merki Capacent, hafi verið hafnað
hjá sýslumanni þar eð um gildan
kaupsamning hafi verið að ræða.
Hins vegar sé uppi ágreiningur um
ákveðin atriði í tengslum við söluna
sem forsvarsmenn Capacent treysti
dómstólum til að úrskurða um.
Forsaga málsins er sú að félag í
eigu starfsmanna keypti í septem-
ber rekstur og vörumerki Capacent
í kjölfar þess að ekki tókst að semja
um niðurfellingu á erlendu láni sem
hvíldi á fyrirtækinu. Hefðu starfs-
menn ekki keypt reksturinn hefði
Capacent ella farið í þrot og hætt
störfum. - mþl
Capacent áréttar að eðlilega hafi verið staðið að kaupum á fyrirtækinu:
Engar veðsettar eignir seldar
CAPACENT Félag í eigu starfsmanna
keypti rekstur og vörumerki Capacent í
september eftir að Íslandsbanki gjald-
felldi erlent lán sem hvíldi á fyrirtækinu.
FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
HAFNARFJÖRÐUR Fjölskylduráð
Hafnarfjarðar tekur undir með
velferðarráði Reykjavíkur um að
unglingaskemmtanir eigi ekki að
halda á vínveitingastöðum.
„Á undanförnum vikum og
mánuðum hefur borið á því
að unglingaskemmtanir, þar
sem aldurstakmark er 14 ár,
séu haldnar á vínveitingastöð-
um og þær auglýstar í gegn-
um samskiptasíður á borð við
Facebook... Nóg er af öðru hús-
næði til slíkra skemmtana og
almennt vilji hjá þeim sem
standa að æskulýðsstarfi ung-
linga til að finna slíkum atburð-
um hentugra húsnæði og betri
umgjörð,“ segir fjölskylduráð
Hafnarfjarðar. - gar
Samstaða í sveitarstjórnum:
Enga unglinga á
vínveitingahús
Urðu úti í hríð
Þrjú ungmenni létust í stórhríð í
Norður-Noregi á fimmtudag. Ung-
mennin voru í snjósleðaferð ásamt
fleirum. Ekkert þeirra var nægilega vel
búið miðað við aðstæður.
NOREGUR