Fréttablaðið - 05.03.2011, Blaðsíða 38
MENNING 2
Listasafn Íslands mætir nýju ári
með mögnuðum sýningum. Inn-
setningin Viðtöl um dauðann
vakti töluverða athygli í Listasafni
Reykjavíkur árið 2003, og nú hefur
Listasafn Íslands fest kaup á þessu
merkilega verki. Hljóðheimar er
síðan afar tímabær sýningaröð og
vekur athygli á fjölda myndlistar-
manna sem nota hljóð í verkum
sínum. Sýningarstjóri er Sigríður
Ólafsdóttir.
Lykilmaður í íslenskri myndlist
Magnús Pálsson (1929) er lykil-
maður í íslenskri myndlistarsögu.
Verk hans eru kannski ekki mjög
þekkt meðal almennings, en meðal
myndlistaráhugamanna er mikil-
vægi hans ótvírætt.
Magnús hefur verið mjög virk-
ur í listinni og haldið fjölmargar
sýningar, hann var meðal annars
fulltrúi Íslands á Tvíæringnum
í Feneyjum árið 1980. Efniviður
hans er fjölbreyttur. Gifs hefur
verið honum hugleikið, hlutlaust
efni sem fangar mót hlutveruleik-
ans, mót hlutanna og andstæðu
þeirra í senn. Hann hefur einnig
gert afsteypur af óefniskenndum
fyrirbærum, afsteypur af hljóði,
líkan af dalalæðu. Tungumálið,
kveðskapur, sögur, rytmi og rím
eru stór þáttur í list hans, sem
og Íslendingasögur, Eddukvæði,
þjóðsögur og fleira. Magnús hefur
unnið raddskúlptúra og kórverk.
Ekki er unnt að gera list hans nein
skil hér, en hún er einstaklega
frjó, fjölbreytt, persónuleg og full
af dásamlegum húmor. Magnús er
einnig mikilvægur fyrir kennslu-
störf sín, en hann stofnaði Nýlista-
deild Myndlista- og handíðaskól-
ans á sínum tíma og leit á kennslu
sem listgrein.
Óvenjulegt samstarf
Fyrir átta árum fékk Helga Hans-
dóttir öldrunarlæknir Magnús til
að taka þátt í verkefni með sér.
Helga hafði gert rannsókn: Fyrir-
bærafræðileg rannsókn á viðhorf-
um aldraðra til lífs og dauða og til
meðferðar við lífslok. Í tengslum
við samstarfsverkefnið List og vís-
indi unnu þau saman sýninguna
Viðtöl um dauðann og var hún
sett upp í Listasafni Reykjavík-
ur, Hafnarhúsi. Rætt var við aldr-
aða um dauðann, Sigríður Hall-
dórsdóttir hjúkrunarfræðingur
tók viðtölin, en á sýningunni eru
þau leiklesin. Magnús hefur fund-
ið viðtölunum umgjörð sem er
hversdagsleg og mögnuð í senn.
Húsbúnaður, borð og stólar vísa
til daglegs lífs, áhorfendur geta
fengið sér sæti og hlustað á viðtöl-
in í heyrnartólum. Ummyndun og
bjögun rýmisins ásamt kvikmynd-
um og hljóði sem varpað er á vegg
ljær innsetningunni aukið drama.
Leiklesturinn veitir nauðsynlega
fjarlægð, upplifun þessara ein-
staklinga er einstaklingsbundin,
en um leið almenn.
Innsetningin er stórvel heppn-
uð. Hún nýtur sín betur hér en í
Hafnarhúsinu á sínum tíma, var
þó líka mögnuð þar. Dauðinn er
ekki hversdagslegt umræðuefni
en það er eitthvað mjög gott við að
hlusta á samtöl um hann sem sjálf-
sagðan hlut. Umgjörðin sér síðan
fyrir því að við gleymum ekki því
umróti sem dauðinn skapar í lífi
þeirra sem eftir sitja, eða þeirra
sem horfast í augu við dauðann
sem staðreynd á einhvern máta.
Samstarfið er óvenjulegt en ein-
staklega vel unnið í alla staði.
Djúpar drunur
Sýningaröðin Hljóðheimar sam-
anstendur af innsetningum sem
skipta á tveggja vikna fresti,
uppákomum, tónleikum, gjörn-
ingum og fræðsluerindum. Það
er við hæfi að Sigurður Guðjóns-
son (1975) hefji sýningaröðina, en
hann hefur vakið athygli alveg frá
því að hann útskrifaðist með flott
verk frá Listaháskóla Íslands árið
2003. Innsetningin Skruð var sýnd
í Gallerí Suðsuðvestur í Reykja-
nesbæ síðasta haust, í húsnæði
sem er töluvert frábrugðið Lista-
safninu, gömlu timburhúsi.
Innsetningin er ekki síðri hér,
jafnvel enn betri, því rýmið er ein-
faldara í sniðum og rímar betur
við list Sigurðar. Hér spila saman
á rytmískan hátt hljóð og mynd og
vísa í margar áttir. Tilraunakvik-
myndir 20. aldar, jafnt Tarkovskí
og Lars von Trier koma upp í hug-
ann, en líka naumhyggjulistamenn
sem vinna með einföld form. Ein-
faldleikinn er þó ekki allur þar
sem hann er séður, hverful lita-
brigði brjóta upp svarthvíta mynd,
hljóðheimurinn er margbrotinn.
Þetta er heillandi verk sem sogar
mann til sín. Í safninu eru einnig
hljóðverk eftir fleiri listamenn
sem sýna glögglega frjósemi og
fjölbreytileika hljóðnotkunar í
myndlist samtímans.
Ragna Sigurðardóttir
Niðurstaða: Innsetningar þeirra
Magnúsar og Sigurðar ríma afar vel
saman. Fjörutíu og sex ár skilja þessa
listamenn að en þeir mætast full-
komlega í verkum sínum. Verk beggja
búa yfir sjaldgæfri dýpt og ná að
fanga áhorfandann eftirminnilega.
Róið á djúpmiðin
Innsetningin nýtur sín betur hér en í Hafnarhúsinu á sínum tíma að mati gagnrýnanda. Umgjörðin sér síðan um að við gleymum
ekki því umróti sem dauðinn skapar í lífi þeirra sem eftir sitja. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
menning kemur út mánaðarlega með laugardagsblaði Fréttablaðsins. Ritstjórn: Freyr Bjarnason Hönnun: Kristín Agnarsdóttir
Forsíðumynd: Valgarður Gíslason Auglýsingar: Bjarni Þór Sigurðsson bjarnithor@365.is
Myndlist ★★★★★
Viðtöl um dauðann Magnús Pálsson og Helga Hansdóttir
Hljóðheimar Sigurður Guðjónsson, Skruð
Listasafn Íslands
Sími: 511 5090
Netfang: einarben@einarben.is
Veffang: www.einarben.is
Food and fun
Við bjóðum John Mooney,
eiganda Bell, Book and Candle
Restaurant, velkominn á Einar Ben.
Gómsætt og gaman!
Upplifðu það besta frá
New York á Einari Ben!
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
FÁÐU BEITTUSTU
BRANDARANA Í SÍMANN
m.visir.is
Fáðu Vísi í símann!
Meiri Vísir.
Meira sjónvarp, meira útvarp, meiri fréttir, meiri upplýsingar,
meiri umræða, meira líf, meiri íþróttir, meiri virkni, meira úrval.
Þú færð meira af öllu á Vísi.
Skopmyndir Halldórs Baldurssonar eru á Vísi.