Fréttablaðið - 05.03.2011, Blaðsíða 55
Húsin í borginni fasteignasala óskar eftir að
ráða vanan sölumann til starfa.
Áhugasamir sendið ferilskár á telma@husin.is
landsbankinn.is 410 4000Landsbankinn
Forstöðumaður
Verkefnastofu
Við leitum að forstöðumanni í krefjandi, áhugavert og gefandi starf. Viðkomandi þarf að hafa leiðtoga-
hæfileika, getu til að hrinda verkefnum í framkvæmd og hrífa fólk með sér. Verkefnastofa tilheyrir sviði
Þróunar og sinnir stýringu á verkefnum sem ganga þvert á bankann. Verkefnastofa keyrir áfram breytingar
og er í lykilhlutverki í innleiðingu stefnu Landsbankans. Á Verkefnastofu fer fram skilgreining, þróun
og uppbygging verkefna ásamt samþættingu, í samstarfi við hagsmunaaðila. Á Verkefnastofu starfa 15
hæfileikaríkir og metnaðarfullir einstaklingar við greiningu, verkefnastjórnun og verkferli.
Helstu verkefni
» Dagleg umsjón deildarinnar og
stjórnun starfsfólks
» Mótun á stefnu og sýn deildarinnar
» Þátttaka í uppbyggingu Agile sam-
félags bankans
» Samskipti við innri viðskiptavini
» Virðismat og forgangsröðun verkefna
» Tryggja að verkefni fylgi stefnu og
að unnið sé að þeim málum sem
fyrir liggja
Hæfniskröfur
» Háskólamenntun sem nýtist í starfi
» Skilningur á Agile hugmyndafræði
og þeim aðferðum sem þar er beitt
» Haldgóð reynsla af verkefnastjórnun
nauðsynleg
» Reynsla af gæðamálum nauðsynleg
» Þekking á bankastarfsemi æskileg
» Frumkvæði, fagmennska og hæfni
í mannlegum samskiptum
» Stjórnunarhæfileikar, skipulags-
hæfni og öguð vinnubrögð
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar veita Jensína K.
Böðvarsdóttir, framkvæmdastjóri
Þróunar, í síma 410 7011 og Berglind
Ingvarsdóttir hjá Mannauði í síma 410
7914. Umsókn merkt „Forstöðumaður
Verkefnastofu“ fyllist út á vef bankans.
Umsóknarfrestur er til og með
13. mars nk.
N
B
I
H
F
.
(
L
A
N
D
S
B
A
N
K
I
N
N
)
,
K
T
.
4
7
1
0
0
8
-
0
2
8
0
Gæðastjóri
Viltu hjálpa okkur að gera enn betur?
Starfið felur í sér ferla- og gæðaúrbætur annars vegar og viðhald á stjórnkerfi
upplýsingaöryggis samkvæmt ISO 27001 hins vegar. Gæðastjóri stýrir jafnframt
öryggisnefnd og hefur umsjón með eignaumsýslu. Um er að ræða starf fyrir
leiðtoga sem getur sameinað kröfur um gæðamál og fyrirtækjamenningu
Vodafone. Gæðastjóri heyrir beint undir framkvæmdastjóra fjármálasviðs en
styður við öll svið fyrirtækisins og tekur þátt í ýmsum þverfaglegum vinnuhópum.
Ábyrgðarsvið gæðastjóra:
Að skjalfesta og viðhalda öryggisstjórnkerfi.
Skráning og viðhald á verklagsreglum um raunlægt öryggi og
upplýsingatækniöryggi.
Kortlagning ferla.
Verkefnastjórnun í gæða- og öryggismálum ásamt fræðslu þar að lútandi innan
fyrirtækisins.
Hæfniskröfur:
Háskólamenntun á sviði viðskiptafræði, verkfræði eða sambærileg menntun.
Meistarapróf er kostur.
Haldbær reynsla af ferlaskráningu og gæðamálum er skilyrði.
Reynsla af stjórnun og innleiðingaferlum hjá ISO vottuðu fyrirtæki er kostur.
Þekking á iGrafx og Sharepoint forritum.
Þekking á verkefnastjórnun.
Hæfni til að miðla upplýsingum.
Framúrskarandi þjónustulund og samskiptahæfileikar.
Nánari upplýsingar veitir Sonja M. Scott, starfsmannastjóri,
sonjas@vodafone.is. Áhugasamir eru hvattir til að leggja inn umsókn á
vodafone.is fyrir 15. mars 2011.
Við bjóðum gott fólk velkomið í skemmtilegan hóp starfsmanna sem setur
viðskiptavininn í fyrsta sæti!