Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.05.1924, Page 25

Sameiningin - 01.05.1924, Page 25
151 ebki kalt í veöri; vætan seitlar og drýpur ofan trén uppi yfir honum. Meðan ;hann er aö velta því fyrir sér, 'hvernig á þessu magnleysi standi, getur hann ekki öðru sint, og gleymir þá óhljóðinu, sem áður kvaldi hainn. En áður en langt um tiður heyrir hann þaö aftur. ‘'Jæja, Davíð minn,” segir hann þá við sjálfan sig. “Nú þarftu ekki að liugsa til að leggja á flótta undan þessum ófagra söng; nú verður þú að taka á því, sem til er, og reyna að þola hann.” l>að er hart aðgöngu iheilbrigðum manni, sem kennir sér einskis meins, að verða að sætta sig við aö liggja kyrr og geta ekki hreyft legg né lið. Hvað eftir annaö reynir :hann fyrir sér, hvort hann get ekki svo mikiö sem krept einn fingur eða deplaði augunum. En það tekst ekki. Allar hreyfingar eru jafn-ógerlegar. Hann fer að \relta því fyrir isér, hvernig hann áður hafi farið að, meðan hann mátti hrærast. Honum finst svo sem hann ihafi einhvern veginn týnt aðferðinni. Alt af er ólhljóðið að færast nær og nær. Það er nú ekki lengra frá en svo, að hann .heyrir glögt, aö vagnskrölt er það, og færist 'hægt og hægt 'ofan Aðalstræti í áttina til torgsins. En mikið hræðilegt skrapatól hlýtur það að vera, sem1 þar er á ferð. Ekki er nóg með það, að járnin ýskri og tísti; nú heyrir hann líka marra og braka í hverju tré, og klárinn skrikar í ihverju spori á steinlagðri götunni. Það gæti ekki verra verið, þó að Helreiðarfjandinn væri að koma, sem hann gamli kunningi hans hafði mestan ýmugust á. “Við erum ekki vanir þvi, Davíð minn,” segir hann við sjálfan sig, “að hafa mikið dálæti á lögreglumönnum. En nú skydlum -við þakka fyrir, ef þeir sýndu rögg af sér og gerðu enda á þessum ólátum.” Davíð hafði oft stært sig af því, að hann væri léttlyndur. En nú uggir hann, að alt sitt léttlyndii sé að fara út um þúfur; það stenz-t ekki þennan söng og alt annað, sern fyrir hatin ihefir borið þetta kvökl. Hann gerir sér herfileg heilabrot um það, að riú finnist hann þarna, verði talinn dauður og borinn burt. kistulagður og graf- inn. “Og þá fær þú að heyra alt, sem sagt verður yfir líkinu, og hæpið er, hvort það lætur betur í eyrum, en liitt, sem þú nú verður að hlusta á.” Ot úr þessu dettur honum Jódiís “systir” í ihug. Ekki svo að skilja, að hann ásakaði ,sig fyrir neitt hennar vegna, heldur sárnaði honum, að !hún skyldi vinna eins konar sigur áj honum. Óhljóðið skefur innan eyrun og sker í hjartað. Enga iðrun vekur það þó fyrir það, sem hann hefir ilt gert öðrum mönnum, heldur ýfir gremju hans út af öllu því, er aðrir menn hafa gert honum til miska. Þegar hann er sem óðast að barma sér um þetta, setur hann alt i einu hljóðan og hlustar gaumgæfilega drvkklanga stund. “Nei, þaö bregzt mér ekki,” segir hann við sjálfan sig. Kerran er komin Aðalstræti á enda ,en hefir ekki haldið áfram niður á1 torgið. Klár- inn er hættur að skrika á kúptum götusteinum og er kominn á möl-

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.