Fréttablaðið - 12.03.2011, Síða 38
4 matur
MARENGS
5 eggjahvítur
250 g sykur
½ tsk. ljóst edik
¼ tsk. salt
¼ tsk. vanilludropar
Þeytið eggjahvítur í 3 mín. Bætið
sykri, ediki, salti og vanilludropum
saman við og þeytið áfram. Setjið
bökunarpappír og marengsblönd-
una í hringform og bakið við 150°C
í um klukkustund. Slökkvið á ofn-
inum og leyfið að kólna yfir nótt.
SVAMPBOTNAR
4 egg
150 g sykur
150 g hveiti
1 tsk. lyftiduft
Þeytið egg og sykur vel saman
Bætið hveiti og lyftidufti hægt út í.
Blandið með sleif. Setjið bökunar-
pappír og deig í 2 hringform og
bakið við 180°C í 15-20 mín.
FYLLING
6 matarlímsblöð
200 g frosin hindber, látin þiðna
og söxuð gróft
½ dl jarðarberjasafi
5 eggjarauður
5 msk. sykur
½ l þeyttur rjómi
Setjið matarlímsblöð í kalt vatn í
20 mín. Sigtið hindber til að taka
umfram vökva úr berjum. Kreistið
vatn af matarlímsblöðum og setjið
í skál ásamt jarðarberjasafa. Setjið
hana yfir heitt vatnsbað þar til
matarlím er bráðnað. Þeytið rjóma
á meðan og leggið til hliðar. Þeytið
eggjarauður og sykur þar til blanda
verður loftmikil. Hellið matarlími
út í eggjablöndu og þeytið aðeins
áfram. Setjið 1/3 þeytta rjómans út
DRAUMUR SILFURFIÐRILDANNA – HINDBERJA M
Þegar bollakökuæðið hefur tröll-
riðið ástríðubökurum í köku-
skreytingum er kominn tími á
nýtt æði; kökusleikjóa. Þá er kaka
rifin niður í skál og hrærð saman
við ljúffengt krem að smekk. Því
næst eru mótaðar kúlur eða önnur
form sem toppa eiga sleikjó prikið
og þegar prikið er komið á kúluna
er henni dýft í litaðan glassúr og
skreytt eftir tilefni og hugmynda-
flugi.
Meistari kökusleikjóa er köku-
drottningin Bakerella sem nýlega
gaf út bókina Cake Pops, en þar
má finna yfir 40 mismunandi
uppskriftir og útgáfur köku-
sleikjóa fyrir öll möguleg tilefni.
Bókin fæst á Amazon og víðar, en
heimasíðan www.bakerella.com
geymir yndislegt augnakonfekt
og innblástur handa öllu bakandi
fólki. - þlg
TUNGULIPRIR KÖKUSLEIKJÓAR
Cake Pops heitir bókin hennar
Bakerellu.
Hver fær staðist svo dísætar varir?Kátar kindur vekja kátínu veislugesta.
Ég er alin upp v ið r ó le g a sunnudaga,
þar sem fjölskyld-
an settist niður yfir
tertu og heitu súkk-
ulaði með kaffinu,“ segir Kristín
Eik Gústafsdóttir, eigandi sér-
vöruverslunarinnar Allt í köku,
þar sem fæst ævintýralegt úrval
efniviðar til kökuskreytinga og
konfektgerðar.
„Bakstur varð fljótt að ástríðu
hjá mér, en þó hafði ég enn meiri
áhuga á að gera kökurnar fínar.
Mér finnst enn tilheyra að fá
sér tertu á hvíldardaginn og fátt
skemmtilegra en að bjóða gestum
heim í fallega köku, en í vinnunni
baka ég ótal sinnum í viku og
finnst því notalegt að vera boðið
annað í sunnudagskaffi nú,“ segir
Kristín Eik hlæjandi og vísar til
vinsælla sykurmassanámskeiða
Allt í köku.
„Eftir að ég kolféll fyrir köku-
skreytingum úr sykurmassa trúði
fólk því varla að ég hefði gert
sunnudagsterturnar sjálf og var
þrautin þyngri að fá fólk til að
skera sér sneið því enginn vildi
ríða á vaðið og skemma útlitið,“
Sætabrauð g
Kristín Eik Gústafsdóttir eigandi Allt í köku og sunnudagskakan hennar.
Kristín Eik rekur verslunina Allt í köku,
þar sem úrvalið er endalaust fyrir þá
sem njóta þess að nostra við köku-
skreytingar. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Nammi
namm!
Hello Kitty slær í gegn hjá öllum stelp-
um.