Fréttablaðið - 12.03.2011, Page 60
6 matur
Þetta er gömul uppskrift frá henni móður minni sem fékk hana frá sinni móður, þannig að kakan er eiginlega fjölskylduleyndarmál,“ fræðir Ingi-
björg Pétursdóttir blaðamann glaðlega um uppruna
eplakökunnar. Hún gerir sér grein fyrir að uppskrift-
in verði ekki leyndarmál lengur eftir að hún hefur
birst í Fréttablaðinu en gefur hana þó fúslega upp.
„Eplakakan er svo einföld og þægileg að baka,“ segir
Ingibjörg og bætir því við að kakan hafi verið einkar
vinsæl á hótelinu í Flatey á Breiðafirði. - gun
Leyndarmálið afhjúpað
„Ég fékk uppskriftina frá móður minni, sem fékk hana frá
móður sinni,“ segir Ingibjörg.
250 g smjör
220 g sykur
250 g hveiti
2 tsk. lyftiduft
1 tsk. vanillusykur
4 egg
4 græn epli
2 msk. kanilsykur
(má sleppa)
Hrærið mjúkt smjörið
og sykurinn í hrærivél
og bætið eggjunum
út í hræruna, einu í
senn. Setjið þá hveitið,
ásamt lyftiduftinu og
vanillusykrinum út í og
hrærið örlítið lengur.
Hellið hrærunni í vel
smurt form með háum
börmum. Flysjið eplin
og skerið í hálfmána.
Potið helmingnum af
eplunum
ofan í deigið
og raðið
restinni
fallega ofan
á það í forminu. Stráið
síðan kanilsykri yfir
eplin. Bakið kökuna
við 200° gráðu hita í
miðjum ofni í 40 mín-
útur og berið
hana fram volga
ásamt þeytt-
um rjóma.
EPLAKAKA
Eplakakan er einföld
og þægileg að baka.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Þegar Ingibjörg Pétursdóttir í Veislu-
þjónustunni Mensu vill gera vel við sitt
heimafólk eða á von á góðum gestum
skellir hún gjarnan eplaköku í ofninn.